HNÍFS- OG SKÁLARBÚNAÐUR
Snúið lokinu rangsælis eins langt og hægt er
og lyftið því af.
Snúið hnífnum réttsælis eins langt og hægt er
og fjarlægið hnífinn og lyftið honum úr skálinni.
Ef innihald skálarinnar er í vökvaformi ætti að
tæma hana áður en hnífurinn er fjarlægður.
NOTKUN HRAÐASTILLIS
Þegar hraðastillirinn er í stöðu „O" er slökkt
á vélinni. Í stöðunni „1" gengur vélin stöðugt.
ÞRIF
Lesið allar leiðbeiningar áður vélin er þrifin.
FYRIR ÞRIF Slökkvið ávallt á vélinni og takið
hana úr sambandi. Ef vélin er ekki með kló
skuluð þið slökkva á straumrofa. Fjarlægið alla
hluta sem má fjarlægja og á að þrífa.
ÞRIF Í UPPÞVOTTAVÉL: Alla hluta sem má
fjarlægja má setja í uppþvottavél.
HANDÞVOTTUR: Notið ávallt uppþvottalög.
HREINSIEFNI: Notið uppþvottabursta til að
þrífa matarsvæðin. Hægt er að þrífa hníföxulinn
í miðri vélinni með litlum flöskubursta. Notið
rakan klút til að þrífa aðra hluta vélarinnar.
SÓTTHREINSUN: Notið ísóprópýlalkóhól
(65-70%). Ísóprópýlalkóhól er afar eldfimt svo
farið varlega þegar það er notað.
VIÐVÖRUN:
• Hellið hvorki né úðið vatni á hliðar vélarinnar.
• Notið ekki natríumhýpóklórít (klór) eða önnur
efni sem innihalda það.
• Notið aldrei beitt verkfæri við þrif eða önnur
verkfæri sem ekki eru ætluð fyrir þrif.
• Notið ekki fægiefni.
FORÐIST: Notið ekki þvottasvampa með
ræstipúðum (t.d. Scotch-Brite™) nema það sé
algjörlega nauðsynlegt. Það ýfir yfirborðsfleti
svo þeir hrinda síður vatni frá sér.
RÁÐ FYRIR UMHIRÐU:
• Þrífið vélina strax eftir notkun.
• Þurrkið vélina strax eftir þrif til að forðast
oxun og upplitun á yfirborðsflötum.
UPPLÝSINGAR: Ef vélin er látin standa rök í
lengri tíma koma blettir á hana. Blettirnir eru
skaðlausir en hafa slæm áhrif á útlit vélarinnar.
Grænmeti og ávextir innihalda sýru. Það hefur
áhrif á málminn, eftir því hvaða vörur eru unnar,
eftir mismunandi langan tíma. Því er mikilvægt
að þrífa vélina strax eftir vinnslu á söltum og
súrum vörum.
BILANALEIT
Til að koma í veg fyrir tjón á vélinni er CC-32S
útbúin hitastýrðri mótorvörn sem slekkur
sjálfkrafa á vélinni ef hitastig hennar verður of
hátt. Hitastýrða mótorvörnin er með sjálfvirkri
endurstillingu, sem þýðir að hægt er að gang-
setja vélina aftur þegar hún hefur kólnað, sem
tekur yfirleitt 10-30 mínútur.
26
BILUN: Vélin fer ekki í gang eða stöðvast
meðan hún er í gangi og ekki er hægt að
endurræsa hana.
LAUSN: Gangið úr skugga um að klóin sitji rétt í
innstungunni eða að straumrofinn sé í stöðu „I".
Gangið úr skugga um að öryggi í töfluskápnum
séu í lagi og að ampertala þeirra sé rétt. Gangið
úr skugga um að grænmetisskurðarbúnaðurinn
sé rétt festur og að búið sé að færa niður
handfangið á honum. Gangið úr skugga um að
skálin og lokið sitji rétt. Bíðið í allt að 30 mínútur
og reynið svo að gangsetja vélina aftur. Fáið
löggiltan fagmann til að gera við hana.
BILUN: Lítil vinnslugeta eða ófullnægjandi
árangur þegar grænmetisskurðarbúnaðurinn
er notaður.
LAUSN: Veljið rétta skurðarverkfærið Notið
ávallt frárásarskífuna. Gangið úr skugga um
að hnífarnir og skurðarskífurnar séu heilar og
bíti vel. Þrýstið matnum niður af minna afli.
BILUN: Lítil vinnslugeta eða ófullnægjandi
árangur þegar hnífs- og skálarbúnaðurinn er
notaður.
LAUSN: Skerið matinn í minni, jafnstóra bita,
í mesta lagi 3x3x3 sm. Vinnið þá í styttri eða
lengri tíma. Vinnið minna magn í hvert sinn.
BILUN: Ekki hægt að fjarlægja skurðarverk-
færið þegar grænmetisskurðarbúnaðurinn er
notaður.
LAUSN: Notið ávallt frárásarskífuna. Notið
þykkan leðurhanska eða öðruvísi hanska sem
hnífar skurðarverkfærisins skera ekki í gegnum
og fjarlægið skurðarverkfærið með því að snúa
því réttsælis.
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
UM HALLDE CC - 32S
VINNSLUGETA OG MAGN: Vinnur allt að
2 kílóum á mínútu með grænmetisskurðar-
búnaðinum, fer eftir skurðarverkfæri og tegund
matvæla. Rúmmál grænmetisskurðarbúnaða-
rins: 0,9 lítrar. Þvermál matarapípunnar: 53
mm. Hnífs- og skálarbúnaður: brúttórúmmál
skálar: 3 lítrar. Nettórúmmál skálar með létt-
fljótandi vökva: 0,9 lítrar.
VÉLARHÚS: Mótor: 1,0 KW. 100-120 V,
220-240 V, einfasa, 50/60 Hz. Hitastýrð mótor-
vörn. Aflyfirfærsla: viðhaldsfrí tannhjólsreim.
Öryggiskerfi: Tveir öryggisrofar: Varnarflokkur:
IP34. Rafmagnsinnstunga: Jarðtengd, einfasa,
10A. Öryggi í töfluskáp á staðnum: 10 A, treg.
Hljóðvist: LpA (EN31201): 76 dBA við skurð
og 82 dBA við vinnslu. Segulsvið: Minna en
0,1 míkrótesla.
HRAÐASTILLINGAR: Tvær hraðastillingar
fyrir fullkomna vinnslu með bæði grænme-
tisskurðarbúnaðinum og hnífs-og skálar-
búnaðinum. Sjálfvirk hraðastilling sem greinir
hvort grænmetisskurðarbúnaðurinn eða
hnífs- og skálarbúnaðurinn er tengdur. Þegar
skorið er með grænmetisskurðarbúnaðinum
vinnur vélin á 500 sn./mín., en þegar hnífs-
og skálarbúnaðurinn er notaður vinnur hún á
1.450 sn./mín.
SKURÐARVERKFÆRI OG HÖKKUNARH-
NÍFUR: Þvermál skurðarverkfæranna er 185
mm. Þvermál hnífsins er 170 mm.
NET WEIGHTS: Machine base: 8,6 kíló. Græn-
metisskurðarbúnaður án skurðarverkfæra: 1
kíló. Skurðarverkfæri: u.þ.b. 0,3 kíló að meðal-
tali. Hnífs- og skálarbúnaður, án hnífs: 1,4 kíló.
STAÐLAR: NSF-STAÐALL 8, sjá samræmi-
syfirlýsingu.
HALLDE • User Instructions