Fyrir Notkun - Toolson PRO-AS 14,4 Manual De Instrucciones

Ocultar thumbs Ver también para PRO-AS 14,4:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 22
Anleitung PRO_AS_14_4_SPK7:_
IS

5. Fyrir notkun

Lesið þessi tilmæli vinsamlegast vel áður en að
hleðsluborvélin er tekin til notkunar:
1. Hlaðið hleðslurafhlöðuna með meðfylgjandi
hleðslutæki. Tóm rafhlaða er eftir um það bil eina
klukkustund fullhlaðin.
2. Notið eingöngu beitta og góða bora, rétt ístykki
sem að eru í góðu ásigkomulagi.
3. Þegar að borað er í veggi verður að athuga vel
áður en hafist er handa hvort að rafmagnsleiðslur,
gasleiðslur eða vatnsleiðslur séu á þeim stað sem
að bora á í.
6. Notkun
6.1 NC-hleðslurafhlaðan hlaðin (myndir 2/3)
1. Takið hleðslurafhlöðuna (5) úr haldfangi
borvélarinnar með því að draga það út á meðan
að losunarrofanum (8) er haldið inni.
2. Gangið úr skugga um að spenna rafrásarinnar
sem nota á sé sú sama og gefin er upp í
upplýsingarskilti tækisins. Stingið rafmagnsleiðslu
hleðslutækisins (6) í samband við straum.
3. Nú logar grænt LED-ljós. Rennið
hleðslurafhlöðunni (5) í hleðslutækið (6). Nú ætti
að loga rautt LED-ljós. Það gefur til kynna að
hleðslurafhlaðan sé í hleðslu. Þegar að
hleðslurafhlaðan er hlaðin eftir um það bil eina
klukkustund logar grænt LED-ljós á
hleðslutækinu. Hleðslurafhlaðan (5) getur hitnað
á meðan að hún er hlaðin, það er eðlilegt.
Ef að hleðsla rafhlöðunnar tekst ekki, athugið þá
eftirfarandi:
hvort að spenna sé á innstungunni sem að notuð
er
hvort að snertifletir hleðslutækisins og
rafhlöðunnar séu hreinir og gefi góða tengingu.
Ef að hleðsla tekst þrátt fyrir það ekki, biðjum við þig
vinsamlegast að senda,
hleðslutækið
og rafhlöðuna
til þjónustuaðila.
Til þess að NC-rafhlaðan endist vel og lengi, athugið
þá vel að hlaða hana vel, rétt og reglulega. Það er
nauðsinlegt að hlaða rafhlöðuna þegar að vélin er
farin að verða afkastaminni.
Tæmið rafhlöðuna aldrei fullkomlega. Það skemmir
hana!
56
11.03.2009
7:14 Uhr
Seite 56
6.2 Herslustilling (mynd 4 / staða 1)
Hleðsluborvélin er með 23 þrepa herslustillingu.
Herslan fyrir vissa skrúfustærð er stillt með
stillihringnum (1). Herslan er stillt til mismunandi nota
og fer eftir:
gerð og stífleika þess efnis sem að notað er
gerð og lengd þeirrar skrúfu sem að notuð er
átaki sem að skrúfan á síðar að halda.
Þegar að kúpling vélarinnar byrjar að smella gefur
hún til kynna að herslunni sé náð sem að stillt var á.
Athugið! Stillið einungis hersluna á meðan að
vélin er ekki í gangi.
6.3 Borað (mynd 4 / staða 1)
Þegar að borað er, snúið þá herslustillingunni á
síðasta þrep "bora". Í borstillingunni er kúplingin óvirk
og þannig mesta herslan virk.
6.4 Stilling snúningsáttar (mynd 5 / staða 3)
Með rofanum fyrir ofan höfuðrofann er hægt að skipta
um snúningsátt hleðsluborvélarinnar og einnig er
hægt að læsa vélinni þannig að hún sé ekki gangsett í
misgripum. Rofanum er hægt að renna til hægri eða
vinstri og þannig er snúningurinn réttsælis eða
rangsælis stilltur. Til að koma í veg fyrir skemmdir á
drifi vélarinnar má einungis skipta um snúningsátt á
meðan að vélin er ekki í gangi. Ef að stillingarrofi
snúningsáttar er í miðstillingu er höfuðrofi
borvélarinnar læstur.
6.5 Höfuðrofi (mynd 5 / staða 4)
Með höfuðrofanum er snúningshraði vélarinnar stilltur
þrepalaust. Eftir því sem að höfuðrofanum er þrýst
lengra inn, hækkar snúningshraði
hleðsluborvélarinnar.
6.6 Skipting milli 1. og 2. gírs (mynd 6 / staða 7)
Skiptingin velur á milli þess hvort unnið er með háum
eða lágum snúningshraða. Til að koma í veg fyrir
skemmdir á drifi vélarinnar má einungis skipta um
snúningsátt á meðan að vélin er ekki í gangi.
6.7 Hleðslumælir (mynd 7 / staða 2)
Þrýstið inn rofanum (a) við hliðina á LCD-skjánum til
þess að hann sýni hleðsluástand rafhlöðunnar. LCD-
skjárinn sýnir hleðsluástand rafhlöðunnar í
prósentum. Ef að rafhlaðan er full hlaðin sýnir skjárinn
hærri tölu en ef að rafhlaðan er tóm.
6.8 LED-ljós (mynd 8)
LED-ljósið (10) gerir mögulegt að lýsa upp skrúfu eða
borstað ef að lýsing vinnustaðar er ekki nægilega
góð. Kveikt er á LED-ljósinu með því að þrýsta á
rofann fyrir ljósið (11). Með því að þrýsta aftur á

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Este manual también es adecuado para:

45.132.40

Tabla de contenido