WOOD'S MDX14 Manual De Instrucciones página 113

Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 57
WOOD RAKEYÐAR ERU LEIÐANDI Í
HEIMINUM
Rakaeyðar frá Wood hafa verið leiðandi á
markaðnum í mörg ár. Rakaeyðarnir henta
til notkunar í kröfuhörðum aðstæðum
þar sem afkastagetan er góð jafnvel við
mismunandi hita- og rakastig. Þá er hægt
að nota með góðum árangri á stöðum
þar sem gjarnan er raki s.s. í kjöllurum,
bílskúrum eða sumarbústöðum. Þær
henta einnig mjög velt til að þurrka þvott,
háaloft, sundlaugasali o.fl. Skilvirkni og
sparneytni. Þeir slíta ekki fötum.
Það magn raka sem rakaeyðirinn fjarlægir
fer eftir hitastigi, rakastigi og staðsetningu
tækisins. Ytri veðurskilyrði geta einnig haft
áhrif á afköst rakaeyðisins. Í köldu veðri
lækkar algildisraki og þess vegna minnka
afköst þurrktækisins. (Rakastig gæti samt
verið hátt.) Rakeyðarnir frá Wood eru
öruggir í notkun og eru ætlaðir til notkunar
árum saman.
Rakeyðarnir frá Wood eru öruggir í notkun
og eru ætlaðir til stöðugrar notkunar árum
saman.
MJÖG HÁTT RAKASTIG – HÆTTA
Þétting verður þegar vatnsgufa í lofti
kemst í snertingu við kalt yfirborð s.s.
kaldan glugga eða vegg. Þegar vatnsgufa
kólnar verður þétting og vatnsdropar
myndast. Í lofti þar sem rakastig ef mjög
hátt getur orðið fúkki og myglumyndun
sem getur valdið skemmdum á húsnæði
og húsgögnum. Þannig umhverfi getur
valdið veikindum hjá íbúum. Maurar
og köngulær þrífast einnig betur í röku
umhverfi. Afkastamikið rakatæki skapar
gott, heilsusamlegt rakastig. Til þess að
afköst séu sem mest ættu gluggar og
hurðir í herbergjum þar sem rakaeyðir er
notaður að vera lokaðar. Eyðir lykt, þurrkar
við og eyðir raka úr útivistarbúnaði.
1. ÖRYGGISVIÐVARANIR
Eldfim efni. Þetta tæki inniheldur
R290/própan sem er eldfimt
kæliefni.
Vísað er í þessa handbók
varðandi öryggisupplýsingar.
Lesið tæknihandbók
Lesið notkunarhandbók.
ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
Áður en þú setur upp tækið og
byrjar að nota það skaltu lesa
meðfylgjandi leiðbeiningar
vandlega. Framleiðandi er ekki
ábyrgur ef röng uppsetning og
notkun valda meiðslum og tjóni.
Geymdu leiðbeiningarnar með
tækinu til að geta skoðað þær.
Öryggi barna og viðkvæmra
VIÐVÖRUN
Hætta á meiðslum eða varanlegri
fötlun.
Börn 8 ára og eldri og einstaklingar
með skerta líkamlega getu, skynjun
eða andlega getu, eða skort á
reynslu og þekkingu geta notað
þetta tæki undir eftirliti eða eftir að
hafa fengið leiðbeiningar varðandi
notkun tækisins á öruggan hátt
og ef þau gera sér grein fyrir þeirri
áhættu sem því fylgir.
Leyfið ekki börnum að leika sér
með tækið.
Notkunarleiðbeiningar
Börnum yngri en 3 ára skal haldið
frá tækinu nema undir stöðugu
eftirlit.
Geymið allar umbúðir fjarri
börnum.
Börn skulu ekki annast hreinsun og
viðhald án umsjónar.
Almennt öryggi
Þetta tæki er ætlað til nota á
heimilum og álíka stöðum svo
sem: kjöllurum, skúmaskotum,
starfsmannaeldhúsum í
búðum, skrifstofum og öðrum
vinnusvæðum. Flokkunarplatan
er staðsett aftan á eða á hlið
rakaeyðisins.
Haldið aðskotahlutum fjarri
loftopum.
Notið ekki vélbúnað eða aðrar
aðferðir til að hraða afísingu en
þær sem framleiðandi mælir með.
Ekki skal geyma tækið í herbergi
þar sem neistagjafar eru í
gangi (opnir logar, gastæki eða
rafmagnshitarar). Gatið ekki eða
brennið.
Hafið í huga að kæliefni geta verið
lyktarlaus. Notið ekki vatnsúða
eða gufu til að hreinsa tækið.
Hreinsið tækið með rökum
mjúkum klút. Notið aðeins hlutlaus
hreinsiefni. Notið ekki slípivörur,
slípiefnasvampa, leysiefni eða
málmhluti.
Ef rafmagnssnúran er skemmd
þarf að skipta um hana hjá
framleiðanda, viðurkenndum
viðgerðaraðila eða sambærilegum
aðila til að forðast að hættulegar
aðstæður skapist.
IS
113

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido