Toolson PRO-SB 750 Manual De Instrucciones página 51

Taladro de percusión electrónico
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 17
Anleitung PRO_SB_750_SPK7:_
5.2 Dýptartakmörkun sett á tækið og hún stillt
(mynd 4 / staða 2)
Dýptartakmarkarinn (2) er festur með klemmu á
aukahaldfangið (7). Klemman er hér einnig fest eða
losuð með því að snúa haldfanginu.
Losið klemmuna og rennið dýptartakmarkara (2) í
þar til gerða festingu í haldfanginu.
Setjið nú takmarkarann (2) á í rétta átt.
Dragið út takmarkarann þar til að rétta dýptin er
innstillt.
Snúið haldfanginu (7) aftur þar til að það er orðið
fast.
Borið nú gat í verkstykkið þar til að
dýptartakmararinn (2) snertir yfirboð þess.
5.3 Bor settur í (myndir 5-6)
Losið dýptartakmarkara (2) og rennið honum eins
og lýst er í lið 5.2 í átt að haldfangi borvélarinnar.
Nú er betra að komast að patrónu (1) vélarinnar.
Losið uppá patrónunni með þar til gerður lykli (8)
með því að snúa honum rangsælis.
Fyrir góða borfestingu ætti borinn eða ítólið sem
notað er að vera eins djúpt og hægt er í
patrónunni. Eftir að borinn eða ítólið er komið á
sinn stað verður að snúa lyklinum (8) í patrónunni
(1) réttsælis þar til að borinn er fastur. Athugið
hvort að borinn sé vel fastur í patrónunni (1).
Athugið reglulega hvort að ítólið sem notað er sé
vel fest og sitji vel og rétt (takið tækið úr sambandi
við straum!).
6. Notkun
6.1 Höfuðrofi (mynd 7 / staða 5)
Setjið rétta borinn í patrónuna (sjá lið 5.3).
Tengið tækið við straum.
Leggið borvélina beint að þeim stað sem að bora
á í.
Kveikt á tæki:
Þrýstið á höfuðrofann (5)
Samfleytt notkun:
Festið inni höfuðrofa (5) með höfuðrofalæsingu (4).
Slökkt á tæki:
Þrýstið stutt á höfuðrofann (5).
13.07.2007
9:22 Uhr
Seite 51
6.2 Snúningshraði stilltur (mynd 7 / staða 5)
Hægt er að breyta snúningshraða vélarinnar
stiglaust á meðan að hún er í notkun.
Með því að þrýsta höfuðrofanum (5) mismunandi
langt inn er snúningshraðanum breytt.
Réttur snúningshraði: Rétti snúningshraði fer eftir
því hvaða efni er notað, hvernig unnið er með
efnið og hvaða bor er notaður.
Höfuðrofa (5) þrýst stutt inn: lítill snúningshraði
(passar fyrir litlar skrúfur og mjúk verkstykki)
Höfuðrofa (5) þrýst langt inn: hærri snúningshraði
(passar fyrir stórar/langar skrúfur og hörð
verkstykki)
Ráð: Byrjið að bora með litlum snúningshraða. Aukið
síðan snúningshraðann jafnt og þétt.
Kostir:
Betra er að stjórna bornum þannig og hann
rennur ekki eins auðveldlega til.
Hægt er að forðast að yfirborð brotni (til dæmis
flísar).
6.3 Skipt milli snúningsátta (mynd 7 / staða 6)
Skiptið einungis milli snúningsátta á meðan
að tækið er ekki í gangi!
Stillið milli snúningsátta með rofanum (6):
Snúningsátt
Réttsælis (herða og bora)
Ýtt inn frá hægri
Rangsælis (losað)
Ýtt inn frá vinstri
6.4 Skipt milli bors/höggbors (mynd 8 / staða 3)
Skiptið einungis milli bors/höggbors á meðan að
vélin er ekki í gangi!
Bor:
Snúið bor/höggbor-rofanum (3) í borstöðu. (Staða A)
Notkun: Viður; málmur; gerviefni
Höggbor:
Snúið bor/höggbor-rofanum (3) í höggborstöðu.
(Staða B)
Notkun: Steypa; steinar; múr
IS
Staða rofa
51

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido