Flutningur Og Geymsla; Vörulýsing - Lowara ATEX e-SV Manual De Instalación, Funcionamiento Y Mantenimiento

Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 36
MONTECCHIO MAGGIORE, 22.07.2013
AMEDEO VALENTE
(FORSTJÓRI VERKFRÆÐIDEILDAR OG
DEILDAR FYRIR RANNSÓKNIR OG ÞRÓ-
UN)
rev.00 [endurskoðun 00]

2 Flutningur og geymsla

2.1 Farðu yfir pöntunina
1.
Kannaðu ytra byrði pakkans í leit að merkjum um skemmdir.
2.
Hafðu samband við dreifingaraðila okkar innan átta daga frá mót-
töku ef sýnilegar skemmdir eru á vörunni.
Fjarlægðu einingu úr pakkningunum
1.
Fylgdu viðkomandi skrefum:
• Ef samstæðunni er pakkað í pappakassa skal fjarlægja hefti
og opna kassann.
• Ef samstæðunni er pakkað í trékassa skal gæta að nöglum
og gjörðum þegar opnað er.
2.
Fjarlægðu skrúfur eða ólar sem notaðar eru til að festa viðar-
grunninn.
Skoðaðu eininguna
1.
Fjarlægðu umbúðirnar.
Fargaðu öllum umbúðum í samræmi við reglugerðir á staðnum.
2.
Kannaðu vöruna til að sjá hvort einhverjar einingar hafi skaddast
eða vanti.
3.
Ef við á, skal losa vöruna með því að fjarlægja skrúfur, bolta og
ólar.
Öryggis skal gætt við meðhöndlum nagla og óla.
4.
Hafðu samband við söluaðila ef eitthvað er í ólagi.
2.2 Viðmiðunarreglur um flutninga
Varúðarráðstafanir
AÐVÖRUN:
• Fylgið slysavarnarreglum sem eru í gildi.
• Hætta á að kremjast. Samstæðan og íhlutir geta verið
þungir. Notið réttar lyftiaðferðir og klæðist ávallt skóm
með stáltá.
Athugið brúttóþyngd sem sýnd er utan á umbúðum til að geta valið
réttan lyftibúnað.
Staðsetning og festingar
Flytja má samstæðuna annaðhvort lárétt eða lóðrétt. Gangið úr skugga
um að samstæðan sé tryggilega fest meðan hún er flutt og geti hvorki
skriðið né oltið.
AÐVÖRUN:
Ekki skal nota augabolta sem skrúfaður er á vélina til að lyfta
með allri dælusamstæðunni.
• Vefja skal ólum um vélina ef hún er 0,25 - 4,0 kW.
• Nota skal reipi eða ólar sem tengjast flöngsunum tveimur (augab-
oltunum ef þeir fylgja) sem eru nálægt samskeytunum milli vélar
og dælu, ef vélin er 5,5 - 55,0 kW.
• Nota má augabolta sem skrúfaðir eru í vélina, eingöngu til að
færa til staka vélina eða ef ekki er búið að jafnvægisstilla, til að
lyfta hluta af samstæðunni lóðrétt úr láréttri stöðu.
• Ef færa á eingöngu dæluna, skal nota ólar, sem festar eru tryggi-
lega við breytistykkið í vélina.
Varðandi frekari upplýsingar um hvernig eigi að koma tryggilega bönd-
um á dæluna, sjá
Mynd 5
.
Samstæða án vélar
Ef samstæðan er ekki afgreidd með vél, er þegar búið að koma fyrir
gaffallaga skinnu á milli breytistykkis og tengis. Millileggið er sett á milli
til að halda dæluhjólunum í réttri öxulstöðu. Á meðan á flutningi stend-
ur er öxlinum líka haldið í stöðu með einangrunarplasti og plastólum til
að koma í veg fyrir skemmdir.
Boltar og rær til að festa vélina fylgja ekki.
ATEX e-SV Installation, Operation, and Maintenance Manual
AÐVÖRUN:
Dælu og vél, sem keypt eru sitt í hvoru lagi og síðan tengd
saman, er litið á sem nýja vél undir Vélatilskipuninni
2006/42/EC. Sá sem tengir saman samstæðuna er ábyrgur
fyrir öllum öryggisatriðum varðandi hana.
2.3 Geymsluleiðbeiningar
Geymslustaður
Vöruna skal geyma á lokuðum og þurrum stað sem er laus við mikinn
hita, óhreinindi og titring.
ATHUGA:
• Verjið vöruna fyrir raka, hitagjöfum og áverkum.
• Setjið ekki mikinn þunga ofan á pakkaða vöruna.
Umhverfishiti
Vöruna skal geyma við umhverfishitastig frá -5°C til +40°C (23°F til
104°F).
3 Vörulýsing
3.1 Gerð dælu
Þetta er lóðrétt, fjölþrepa dæla sem ekki præmar sig og sem hægt er
að tengja við ATEX rafvélar. Dæluna er hægt að nota til að dæla:
• Köldu vatni
• Volgum vökva
Málmhlutar dælunnar sem komast í snertingu við vökva eru gerðir úr
eftirfarandi:
Raðir
Efni
1, 3, 5, 10, 15, 22 Ryðfrítt stál
33, 46, 66, 92, 125 Ryðfrítt stál og steypujárn
Sérútgáfa er til þar sem allir hlutar eru gerðir úr
ryðfríu stáli.
SV dælurnar 1, 3, 5, 10, 15, og 22 eru fáanlegar í öðrum útfærslum allt
eftir staðsetningu inntaks- og framrásarops og lögun tengiflangs.
Hægt er að afgreiða dælusamstæðuna (dælu og rafvél) eða dæluna
sér.
ATHUGA:
• Ef keypt hefur verið dæla án vélar, skal tryggja að vélin henti til að
tengjast dælunni.
• Rafvélin skal vera uppsett í V stöðu (lóðrétt) með regnvörn (drop-
avörn)
• Þegar notaður er tíðnibreytir (VSD) skal hafa samband við sölu-
og þjónustudeildina.
Pakkdós
Raðir
Helstu dælueiginleikar
1, 3, 5
Nafnþvermál 12 mm (0,47 tommur), ójafnvægisstillt,
snýst réttsælis, K útgáfa (EN 12756)
10, 15, 22
Nafnþvermál 16 mm (0,63 tommur), ójafnvægisstillt,
snýst réttsælis, K útgáfa (EN 12756)
Jafnvægisstillt við vélarafl ≥ 5 kW
33, 46, 66,
Nafnþvermál 22 mm (0,86 in.), jafnvægisstillt, snýst til
92, 125
hægri, K gerð (EN 12756)
Notkunarsvið
Dælan er gerð fyrir:
• Notkun í umhverfi með hugsanlega sprengifimu andrúmslofti veg-
na eldfimra efna í formi gass, gufu eða misturs
Varðandi frekari upplýsingar, sjá
Röng notkun
AÐVÖRUN:
Röng notkun dælunnar getur skapað hættulegar aðstæður
og valdið líkamstjóni og eignaskemmdum.
Röng notkun vörunnar leiðir til að ábyrgðin fellur úr gildi.
is - Þýðing af upprunalega eintakinu
Mynd 2
.
89

Publicidad

Tabla de contenido

Solución de problemas

loading

Tabla de contenido