Íslenska - IKEA TOSTERÖ Manual De Instrucciones

Ocultar thumbs Ver también para TOSTERÖ:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 14
Íslenska
TOSTERÖ hlífin er vatnsheld og verndar
útihúsgögnin þín fyrir regni, sól, snjó, óhreinindum,
ryki og frjókornum þegar þau eru ekki í notkun.
Með vatnsheldri hlíf, verndar þú húsgögnin þín og
lengir tímann þar til þú þarft að sinna viðhaldi.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
Athugið! Ekki er hægt að snúa hlífinni við.
Glansandi hliðin verður alltaf að snúa inn, að
húsgagninu.
Gættu þess að húsgagnið sé þurrt Þegar búið er
að breiða yfir húsgagnið þarf að lyfta því örlítið og
setja hlífina undir til að tryggja að hún haldist á
sínum stað í öllu veðri.
Geymdu útihúsgagnið á svölum og þurrum stað
innandyra þegar það er ekki í notkun í lengri tíma.
Ef ekki er komist hjá því að það standi úti þarf
að breiða yfir það og geyma undir þaki á þurru
gólfi eða yfirborði til að koma í veg fyrir að mygla
komist í viðinn í gegnum fæturna. Ef ekki er hægt
að geyma húsgagnið undir þaki, þarf að halla því
svo að regnvatn renni af því. Eftir mikla rigningu
eða snjókomu þarf að strjúka af húsgagninu,
sérstaklega sléttum flötum. Geymdu húsgagnið
þannig að loft leiki um það til að koma í veg fyrir
skemmdir vegna raka og myglu.
UMHIRÐULEIÐBEININGAR
Til að hreinsa ryk og óhreinindi af hlífinni ætti
að sprauta á hana köldu vatni (30°C) eða þurrka
af henni með blautri tusku. Til að hreinsa
mikil óhreinindi þarf að nota svamp og mildan
uppþvottalög, og skola á eftir með köldu vatni.
9

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido