Ocultar thumbs Ver también para IDÅSEN:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 44
ÍSLENSKA
Börn frá 8 ára aldri og fólk með skert skyn eða skerta
líkamlega- eða andlega getu geta notað þetta tæki ef þau
eru undir eftirliti eða hafa fengið leiðbeiningar um hvernig
á að nota tækið á öruggan hátt og að það skilji hætturnar
sem því fylgir. Börn eiga ekki að leika sér með tækið.
Börn eiga ekki að sjá um þrif og viðhald nema undir
eftirliti.
Ráð og leiðbeiningar fyrir IDÅSEN
Hljóðstyrkur:
Minni en 55 dB(A)
Hæðarstilling:
60-124 cm/23,6-48,8"
Burðarþol:
75 kg/165 lbs.
Kjörhitastig við notkun:
+10 til +40°C/+50 til +104°F.
Kjörhitastig við geymslu:
-18 til +70°C/0 til 158°F.
Rakastig:
20% til 90% við 40°C/104°F.
Aflgjafi:
DC 24-29 V, 140-175 W.
Módel:
ASW0539-24020002A
ASW0551-24020002A
ASW0552-29020002B
Notaðu tækið aðeins með meðfylgjandi
aflgjafa.
Hver sem ber ábyrgð á uppsetningu og
notkun þessa borðs eða viðhaldi og viðgerð,
ætti að lesa þessar leiðbeiningar vandlega.
Geymdu leiðbeiningarnar nærri borðinu.
Uppsetningarleiðbeiningar
— Borðið sett saman
samkvæmt meðfylgjandi
samsetningarleiðbeiningum.
— Tengdu snúruna úr einum fæti yfir í
þann næsta. Tengdu fjarstýringuna og
rafmagnssnúru við fótinn. Snúrurnar
sem liggja í fæturna, stjórnbúnaðinn
og í rafmagn ætti svo að setja í
bakkann á grindinni. Komið þeim
þannig fyrir að þær skemmist ekki, sjá
samsetningarleiðbeiningar.
— Tengdu rafmagnssnúruna í
vegginnstungu.
ATH! Rafmagnssnúran verður að liggja
þannig að hún geti færst til.
— Borðið er nú tilbúið til notkunar. Mótorinn
stöðvast sjálfkrafa þegar borðið hefur
náð lægstu eða hæstu mögulegu
stillingu.
Notkun borðs
— Borðið er aðeins ætlað til notkunar sem
vinnuborð með möguleika á að stilla
vinnuhæðina milli standandi og sitjandi
stöðu. Borðið má aðeins nota innandyra
og í þurru umhverfi (á skrifstofu o.þ.h.).
Ekki má ofhlaða borðið, burðarþol er 75
kg. Mótorinn má ganga viðstöðulaust í
tvær mínútur að hámarki. Eftir það þarf
að hvíla mótorinn í u.þ.b. 18 mínútur
áður en má nota hann aftur.
24

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido