Dometic CH4000 Manual De Servicio Y Montaje página 139

Calentador combinado de glp
Ocultar thumbs Ver también para CH4000:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 25
Upprunalegar leiðbeiningar
Lestu þessar leiðbeiningar vandlega og fylgdu öllum fyrirmælum og viðvörunum í handbókinni til að tryggja
rétta uppsetningu, notkun og viðhald á vörunni. Þessar leiðbeiningar VERÐA að fylgja vörunni.
Með því að nota vöruna staðfestir þú hér með að þú hafir lesið allar leiðbeiningar, fyrirmæli og viðvaranir
vandlega og samþykkir að fylgja skilmálunum sem hér er að finna. Þú samþykkir að nota þessa vöru eingöngu
eins og til ætlast og í samræmi við leiðbeiningarnar, fyrirmælin og viðvaranirnar í þessari handbók, auk þess að
fylgja öllum gildandi lögum og reglugerðum. Ef þú lest ekki og ferð ekki eftir þessum leiðbeiningum og
viðvörunum gætir þú slasað þig og aðra og valdið tjóni á vörunni og öðrum nálægum eignum. Þessi handbók,
þar á meðal fyrirmælin, leiðbeiningarnar og viðvaranirnar sem þar er að finna og fylgiskjöl með henni, kann að
vera uppfærð eða henni breytt. Nýjustu vöruupplýsingarnar má finna á dometic.com.
Skýring á táknum
!
VIÐVÖRUN!
Öryggisleiðbeiningar: Gefur til kynna aðstæður sem
kunna að vera hættulegar og sem geta valdið dauða eða
alvarlegum meiðslum ef ekki er komið í veg fyrir þær.
!
VARÚÐ!
Öryggisleiðbeiningar: Gefur til kynna hættulegar
aðstæður sem geta valdið minniháttar eða óverulegum
meiðslum ef ekki er komið í veg fyrir þær.
A
ATHUGASEMD!
Gefur til kynna aðstæður sem geta valdið eignatjóni ef ekki er
komið í veg fyrir þær.
Öryggisleiðbeiningar
Fylgið ráðlögðum öryggisleiðbeiningum og skilmálum frá
framleiðanda ökutækisins og þjónustuverkstæðum.
Hafið eftirfarandi grundvallaröryggisupplýsingar í huga við notkun
raftækja til að verjast:
Raflosti
Eldhættu
Meiðslum
Meðhöndlun tækisins
!
VIÐVÖRUN!
Aðeins sérþjálfað starfsfólk, sem þekkir hætturnar sem
fylgja notkun og viðeigandi reglugerðir, skal sinna
uppsetningu og viðgerðum á vélinni. Ófullnægjandi
viðgerðir geta haft alvarlegar afleiðingar. Ef þörf er á
viðgerðarþjónustu skal hafa samband við þjónustudeild
framleiðanda (sjá baksíðu).
Ef eldur kemur upp skal aðeins nota samþykkt slökkvitæki.
Notið ekki vatn til að slökkva elda.
!
VARÚÐ!
Festa skal rækið kirfilega svo það geti ekki dottið niður.
Aðeins nota tækið ef fullvissa er fyrir því að engar
skemmdir séu á snúrum og húsinu.
Ekki skal nota gölluð tæki.
Ekki má nota tækið nálægt eldfimum vökva.
Gangið úr skugga um að engir eldifimir hlutir séu nálægt
loftúttökunum. Halda verður að minnsta kosti 50 cm
fjarlægð.
Notið ekki tækið áður en loftrásir fyrir heitt loft hafa verið
settar upp.
A
ATHUGASEMD!
Tækið má aðeins nota eins og til er ætlast.
Ekki gera neinar breytingar á tækinu.
IS
Meðhöndlun rafmagnssnúra
!
VIÐVÖRUN!
Tenging við aflgjafa verður að vera í höndum rafvirkja með
tilskilin réttindi (t.d. VDE 0100-721 í Þýskalandi).
!
VARÚÐ!
Leggið og festið snúrur þannig að ekki sé hætta á að detta
um þær eða skemma þær.
A
ATHUGASEMD!
Notið snúrustokka þegar snúrur eru lagðar í gegnum
veggi með hvassar brúnir.
Leggið ekki lausar eða bognar snúrur nálægt rafleiðandi
efnum (málmi).
Ekki toga í snúrurnar.
Markhópurinn fyrir þessa
notendahandbók
Leiðbeiningarnar í þessari handbók eru ætlaðar sérþjálfuðu starfsfólki á
verkstæðum sem þekkir til þeirra leiðbeininga og varúðarráðstafana sem
ber að fylgja.
Fylgir með
Sjá mynd. 1, bls. 3.
Aukabúnaður
Nr. í
mynd. 2,
Lýsing
bls. 3
1
Stjórnborð (1,5" snúningsstýring, DICM) (áskilið)
2
Hliðarrist (áskilin)
3
Gluggarofi (valkvætt)
Tilætluð notkun
Hitarinn er eingöngu hannaður fyrir notkun í húsbílum, hjólhýsum og
öðrum ökutækjum með vistarverum þar sem gaskerfið er sett upp í
samræmi við EN 1949.
Tækið hentar ekki til uppsetningar í vinnuvélum, landbúnaðarvélum,
vinnubílum, bátum, húsum eða íbúðum, veiði- eða skógarkofum,
sumarbústöðum, sóltjöldum eða því um líku.
Aðeins má nota tækið til að hita neysluvatn og innanrými ökutækisins.
Aldrei má nota það til að hita aðra vökva.
Aðeins má nota tækið með upprunalegum loftrásum og hliðarrist frá
framleiðanda. Aldrei má nota aðrar loftrásir eða ristar fyrir heitt loft.
Ekki má nota tækið við akstur nema til staðar sé búnaður til að koma í veg
fyrir ótakmarkaðan leka á fljótandi gasi við árekstur (samkvæmt reglugerð
efnahagsnefndar Sameinuðu þjóðanna fyrir Evrópu nr. 122).
Ekki er heimilt að nota tæki sem ekki eru uppsett í samræmi við
uppsetningarkröfur framleiðanda.
Sé tækið sett upp í atvinnuökutæki þarf stjórnandi þess að taka tillit til
gildandi laga- og tryggingarkrafna.
Þessi vara hentar aðeins til notkunar samkvæmt þessum leiðbeiningum.
Í þessari handbók eru upplýsingar sem eru nauðsynlegar fyrir rétta
uppsetningu og/eða notkun á vörunni. Ófullnægjandi uppsetning
og/eða röng notkun eða viðhald veldur óviðunandi afköstum og ef til vill
bilun.
4445103144
139

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Este manual también es adecuado para:

Ch4000eCh6000Ch6000e

Tabla de contenido