Descargar Imprimir esta página

IKEA TRADFRI Serie Manual De Instrucciones página 9

Ocultar thumbs Ver también para TRADFRI Serie:

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 14
Íslenska
STJÓRNTÆKI PARAÐ VIÐ MILLISTYKKI F/
FJARSKIPTABÚNAÐ
Þegar millistykki fyrir fjarskiptabúnað er
selt með rofa til að slökkva og kveikja (í
sömu pakkningu) er þegar búið að para
tækin saman.
Til að bæta fleiri millistykkjum fyrir
fjarskiptabúnað við þarf að framkvæma
neðangreind skref:
1. Gakktu úr skugga um að millistykkið sé
tengt og kveikt sé á meiginaflgjafa.
2. Hafðu stjórntækið nálægt millistykkinu
sem þú vilt bæta við (ekki í meira en 5
cm fjarlægð).
3. Ýttu og haltu pörunarhnappnum (1)
inni í a.m.k. 10 sekúndur, hnappurinn er
undir lokinu að aftan.
Rautt ljós lýsir stöðugt á rofanum
til að slökkva og kveikja. Hvítt ljós á
millistykkinu dofnar og blikkar einu
sinni til að gefa til kynna að það hafi
verið parað.
Hægt er að para allt að 10 millistykki
fyrir fjarskiptabúnað við einn rofa til að
slökkva og kveikja.
Paraðu eitt millistykki í einu við rofann. Ef
millistykkin eru nálægt hvor öðru skaltu
taka millistykkin sem þegar hafa verið
pöruð úr sambandi.
ENDURSTILLA
Fyrir millistykki fyrir fjarskiptabúnað:
Ýttu pinna í gatið undir millistykkinu í
a.m.k. 5 sekúndur.
MIKILVÆGT!
• Millistykkið fyrir fjarskiptabúnað er
aðeins ætlað til notkunar innanhúss og
við hitastig frá 0º C til 40º C.
• Ekki skilja millistykkið eftir í beinu
sólarljósi eða nálægt hitagjöfum, þar
sem það gæti ofhitnað.
• Millistykkið ætti ekki að komast í
snertingu við blautt, rakt eða óhóflega
rykug umhverfi, þar sem það gæti
valdið skemmdum.
• Drægi á milli stjórntækis og og
móttökutækisins er mælt á opnu
svæði. Mismunandi byggingarefni og
staðsetning tækjanna geta haft áhrif á
drægi þráðlausu tengingarinnar.
VARÚÐ:
• Ekki tengja við annað millistykki.
• Ekki hylja þegar það er í notkun.
• Taktu úr sambandi til að aftengja.
• Notaðu það aðeins innandyra, á þurrum
stöðum.
• Varastu of mikið álag.
• Fargaðu millistykkinu ef það er skemmt.
• Aðeins til notkunar fyrir fullorðna. Þetta
er ekki leikfang og ekki ætlað börnum.
UMHIRÐULEIÐBEININGAR
Til að þrífa millistykki fyrir fjarskiptabúnað
ætti að strjúka af því með rökum klút.
ATHUGAÐU!
Ekki nota sterk hreinsiefni eða kemísk
efni, þar sem það getur skemmt vöruna.
VIÐHALD VÖRU
Ekki reyna að gera við þessa vöru upp á
eigin spýtur, því ef þú opnar eða fjarlægir
lokin gætir þú orðið fyrir rafstraumi eða
öðrum hættum.
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
Tegund: E1603 þráðlaust millistykki fyrir
fjarskiptabúnað
E1703 þráðlaust millistykki fyrir
fjarskiptabúnað
E1709 þráðlaust millistykki fyrir
fjarskiptabúnað
Inntak: 100-240V, 50-60Hz
Hámarksútgangsafl: 3840W
Drægi: 10 m í opnu rými.
Aðeins til notkunar innanhúss
Vinnslutíðni: 2405-2480Mhz
Útgangsafl: 14 dBm
Framleiðandi: IKEA of Sweden AB
Heimilsfang: Box 702, 343 81 ÄLMHULT
Táknið með mynd af ruslatunnu með
krossi yfir þýðir að ekki má farga vörunni
með venjulegu heimilissorpi. Vörunni
þarf að skila í endurvinnslu eins og lög
gera ráð fyrir á hverjum stað fyrir sig.
Með því að henda slíkum vörum ekki með
venjulegu heimilissorpi hjálpar þú til við
að draga úr því magni af úrgangi sem
þarf að brenna eða nota sem landfyllingu
og lágmarkar möguleg neikvæð áhrif á
heilsu fólks og umhverfið. Þú færð nánari
upplýsingar í IKEA versluninni.
9

Publicidad

loading