IS
Leiðbeiningar
1. Setjið brauðristina á jafnslétt, hitaþolið yfirborð. Stingið
brauðristinni í samband við innstungu í vegg. Áður en
brauðristin er notuð í fyrsta sinn skal leyfa henni að
hitna án þess að setja í hana brauð til að losna við öll
óhreinindi.
2. Stilltu ferli ristunar á hámarksstillingu (7). Næst skaltu
ýta á start/stopp-hnappinn, bíða eftir 3 hljóðmerkjum
sem gefur til kynna að ferlinu sé lokið og brauðristin er
tilbúin til notkunar.
3. Settu brauðið á ristina og stilltu ristina á þá stillingu
sem óskað er eftir (1–7). Ristunin er styst á stillingu 1 og
lengst á stillingu 7 (dökkristun). Því hærri sem talan er,
þeim mun lengur varir ristunin. Ýttu á start/stopp-
hnappinn og ristunin byrjar. (mynd 1)
4. Brauðristin er aðeins ætluð fyrir brauð. Vinsamlegast
athugið að skorpið brauð þarfnast styttri ristunar en
ferskt brauð.
5. Ef þú óskar er eftir að stöðva ristunina áður en ferli
ristunar er lokið skaltu ýta á start/stopp-hnappinn.
(mynd 2)
6. Ef hluti brauðs dettur niður á botn á brauðristinni skal
taka hana úr sambandi og leyfa brauðristinni að kólna.
7. Snúið brauðristinni við og hristið hana varlega til að
ná brauðinu úr. Notið ekki málmáhöld og snertið ekki
hitunarbúnaðinn þar sem hann getur skemmst og slíkar
skemmdir falla ekki undir ábyrgð.
VIÐHALD
Látið brauðristina kólna til fulls áður en hún er hreinsuð.
Slökkvið á brauðristinni og takið hana úr sambandi.
Brauðmylsnan safnast saman í mylsnubakkanum neðst
í ristinni. Dragðu mylsnubakkann úr með því að grípa um
handfangið og hreinsa bakkann með t.d. bursta áður en þú
setur hann aftur í brauðristina. (mynd 3)
VIÐVÖRUN: Tæmdu mylsnubakkann reglulega. Brauð-
mylsna safnast upp í mylsnubakkanum og getur brunnið
ef bakkinn er ekki tæmdur nógu oft.
Hreinsið ytra borð ristarinnar með rökum klút og þurrkið
hana með mjúkum klút eða viskustykki. Notið aldrei hreinsi-
duft eða rispandi hreinsiefni þar sem þau geta skemmt
yfirborð ristarinnar.
ÖRYGGI
1. Lesið notkunarhandbókina vandlega fyrir notkun
og geymið hana til að geta leitað í hana síðar.
30
2. Setjið brauðristina aðeins í samband við 220–240V
innstungu og notið hana á tilætlaðan hátt.
3. Takið brauðristina ávallt úr sambandi þegar hún er ekki
í notkun.
4. Dýfið brauðristinni ekki í vatn eða aðra vökva.
5. Börn sem eru 8 ára og eldri og aðilar með skerta líkam-
lega, skynræna eða andlega hæfni eða aðilar sem skortir
reynslu eða hæfni mega nota ristina ef þeir hafa hlotið
leiðsögn eða leiðbeiningar um hvernig nota eigi ristina
á öruggan hátt af hálfu aðila sem ber ábyrgð á öryggi
þeirra og hafi skilið þær hættur sem um er að ræða.
6. Hafa skal umsjón með börnum til að tryggja að þau
leiki sér ekki með ristina. Börn eru ekki alltaf með-
vituð um hugsanlegar áhættur. Kennið börnum að fara
með raftæki á ábyrgan hátt.
7. Börn mega ekki sjá um hreinsun og viðhald ristarinnar
nema þau séu eldri en 8 ára og séu undir umsjón.
8. Ristin og rafmagnssnúran eiga að vera þar sem
börn undir 8 ára aldri ná ekki til.
9. Tryggið að rafmagnssnúran lafi ekki út fyrir borðbrúnina.
10. Setjið ristina ekki nálægt eða ofan á heitt yfirborð,
opinn eld eða annað álíka.
11. VIÐVÖRUN: Brauð getur brunnið við. Þess vegna skal
ekki nota ristina nálægt eða fyrir neðan brennanleg
efni, svo sem gardínur. Brauðristina má eingöngu nota
þegar fylgst er með henni.
12. VIÐVÖRUN: Þar sem yfirborð ristarinnar getur hitnað
við notkun skal ekki snerta hana þegar hún er í gangi.
13. Setjið aldrei málmhluti inn í eða á ristina og snertið
aldrei hitunarbúnaðinn.
14. VIÐVÖRUN: Til að forðast að hætta skapist vegna
óviljandi endurstillingar hitarofs má ekki tengja tækið
við utanaðkomandi gangsetningarbúnað, svo sem tíma-
stilli, eða tengja það við rafrás sem slökknar og kviknar
á til skiptis.
15. Skoðið ávallt ristina, rafmagnssnúruna og klóna fyrir
notkun til að athuga hvort skemmdir séu til staðar.
16. Til frekari varnar er mælt með notkun lekaliða (RCD)
með skráðan lekastraum sem fer ekki umfram 30 mA.
Leitið ráða hjá uppsetningaraðilanum.
17. Tækið er til heimilisnotkunar eingöngu.
18. Ef tækið er notað á annan hátt en ætlast er til, eða
ef ekki er farið með það í samræmi við notkunarleið-
beiningar ber notandinn einn ábyrgð á afleiðingunum.
Allar skemmdir á vörunni eða öðrum hlutum heyra ekki
undir ábyrgð.
19. Ef rafmagnssnúran hefur orðið fyrir skemmdum þarf að
kalla til þjónustuaðila, eða annan aðila sem til þess er
hæfur, og láta skipta um hana.
KVARTANIR
Þú hefur rétt til að senda inn kvörtun í samræmi við við-
eigandi löggjöf. Ef kvörtun er gerð skal framvísa kvittun
með kaupdegi sem er stimpluð með vél. Ef kvartanir eru
gerðar skal fara með brauðristina á staðinn sem hún var
keypt á.
FÖRGUN RISTARINNAR
Samkvæmt löggjöf skal endurvinna raf- og
rafeindatæki og -hluti. Raf- og rafeindatækjum
sem merkt eru með endurvinnslumerkinu skal
farga á staðbundinni endurvinnslustöð.
TÆKNILEG GÖGN
FOODIE brauðrist
Vörunúmer: IN-Z00601-X
220–240 VAC 50–60 HZ 600 W
Réttur til að gera áframhaldandi breytingar og uppbætur
er áskilinn.
RIG-TIG
Christianshavns Kanal 4
1406 Copenhagen K
Danmörk
IS
31