Íslenska
TOSTERÖ geymslukassinn er vatnsheldur og
verndar útisessurnar þínar og púða gegn sólarljósi,
regni, óhreinindum, ryki og frjókornum, og er
hentug geymsla þegar þau er ekki í notkun.
Geymsla á sessum og púðum í vatnsheldum
geymslukassa er einföld og skilvirk leið til að halda
þeim nýlegum og fallegum lengur. Athugaðu!
Passaðu að sessurnar og púðarnir séu alveg þurr
áður en þú setur þau í geymslukassann til geymslu.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
Við mælum með að púðar, sessur og önnur
vefnaðarvara til notkunar utandyra sé geymd í
geymslukassanum þegar hún er ekki í notkun til
að halda henni þurri og hreinni. Yfir veturinn ætti
að geyma sessur og púða í geymslukassanum á
þurrum og svölum stað innandyra. Geymslukassinn
er ekki ætlaður börnum.
UMHIRÐULEIÐBEININGAR
Til að hreinsa ryk og óhreinindi af kassanum
ætti að sprauta á hann köldu vatni (30°C) eða
þurrka af honum með blautri tusku. Til að hreinsa
mikil óhreinindi þarf að nota svamp og mildan
uppþvottalög, og skola á eftir með köldu vatni.
9