Íslenska - IKEA SVÄVA Manual De Instrucciones

Ocultar thumbs Ver también para SVÄVA:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 14
ÍSLENSKA
Mikilvægt - lesið vel - geymið til að lesa
síðar
IKEA of Sweden, Pósthólf 702, S-343 81
Svíþjóð
Varúð: aðeins til heimilisnota.
Aðeins til notkunar innandyra.
Hentar börnum yfir þriggja ára aldri.
Hámarksburðarþol 70 kg/154lb.
Varúð
— Fullorðinn þarf að setja saman. Notið
leiktækið ekki fyrr en það hefur verið
rétt sett saman.
— Setjið leiktækið upp í a.m.k. 2,5m
fjarlægð frá öllum hindrunum eins og
girðingum, byggingum, trjágreinum,
þvottasnúrum eða rafmagnsvírum.
— Kaðalstigann/róluna þarf að festa
með meðfylgjandi smellufestingum á
króka sem hafa verið vandlega festir
í burðarbita/loft. Notið króka sem
kaðallinn losnar ekki úr, eins og EKORRE
króka frá IKEA.
— Hengið ekki yfir steypu, malbik,
þjappaða mold eða annað hart undirlag.
Fall á hart undirlag getur valdið
alvarlegum skaða.
— Mælt er með því að fullorðnir fylgist með
notkun leiktækisins.
Til að draga úr hættu á alvarlegum slysum,
eða jafnvel dauða, þarf að brýna fyrir
börnum að:
— aðeins einn leiki sér í einu í rólunni
— ganga hvorki né leika sér fyrir framan
eða aftan róluna þegar hún er á
hreyfingu
— að sitja á miðju rólunnar og setja allan
þungann á sætið
— að fara ekki úr rólunni þegar hún er á
ferð
— snúa ekki upp á róluna eða smeygja
henni yfir burðarbita/-slá
— festa ekki við róluna hluti eins og reipi,
snúrur eða annað sem börn geta fest
sig í
Viðhald
Til að koma í veg fyrir hættuna á
alvarlegum slysum, eða jafnvel dauðsfalli,
þarf að gera eftirfarandi í hverjum mánuði:
— fara yfir allar festingar og herða ef þörf
krefur.
— fara yfir sæti, reipi og annan búnað
og athuga hvort sjáist slit. Notið ekki
róluna ef einhverjar skemmdir eru
sjáanlegar.
Höggdempandi yfirborð
Af því að börn geta gert það að leik sínum
að hoppa viljandi úr rólu, ætti að setja
undir hana höggdempandi undirlag. Það
ætti að ná framan og aftan við róluna
eins langt og nemur að minnsta kosti
tvöfaldri hæð rólunnar frá jörðu að
upphengifestingum.
Ef 40 cm eru frá rólu að jörð, er mesta
fallhæð 300 cm. Höggdempandi undirlag
getur verið til dæmis tættur trjábörkur,
viðarflísar (að minnsta kosti 20-25 cm
djúpt) og sandur eða möl (að minnsta kosti
30 cm djúp). Farið reglulega yfir efnið og
bætið í eftir þörfum.
9

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido