Si_Hi_Schweissgeraet_Bauhaus_SPK7:_
IS
Öryggisleiðbeiningar
Farið undantekningarlaust eftir
öryggisleiðbeiningunum
Ótilætluð notkun á þessu tæki getur valdið skaða á
fólki, dýrum og verðmætum. Notandi þessa tækis er
ábyrgur fyrir eigin öryggi og öryggi annarra í nágrenni
tækisins:
Lesið því notandaleiðbeiningarnar vel og farið einnig
eftir tilmælunum.
Viðgerðir og viðhald á þessu tæki má eingöngu
vera framkvæmd af fagfólki með þar til gerð
réttindi.
Einungis mega meðfylgjandi tengingar og
suðutengingar vera notaðar.
Sjáið til þess að tækinu sé vel við haldið.
Til að koma í veg fyrir að tækið hitni óðarflega
mikið á meðan að það er notað, á ekki að
staðsetja tækið í þröngu rými, ekki við vegg
þannig að loft komist vel og óhindrað í gegnum
kæligötin á tækinu. Gangið vel úr skugga um að
tækið sé vel tengt við straum. Forðist að
rafmagnsleiðslan sé strekkt. Takið tækið ávallt úr
sambandi áður en að það er hreyft eða flutt til.
Fylgist vel með ástandi suðuleiðslunnar,
elektróðunnar og jarðtengingarinnar; skemmd
eða uppnotuð einangrun á köplum og öðrum
hlutum sem leiða straum geta valdið hættulegum
aðstæðum og einnig minnkað gæði suðunnar.
Neistar, bræddir málmhlutir og reykur eru til
staðar þegar að soðið er. Passið því vel að
fjarlægja öll eldfim efni og/eða hluti sem geta
brunnið frá vinnusvæðinu.
Gangið úr skugga um að nægilegt ferskt loft sé til
staðar þar sem að unnið er.
Sjóðið ekki ílát, rými eða rör sem innihaldið hafa
eldfima vökva eða gas. Forðist öll bein sambönd
við suðuhringrásina; sú spenna sem liggur milli
elektróðu og jarðtengingar getur verið mjög
hættuleg.
Notið ekki tækið í röku eða blautu umhverfi og
ekki heldur í rigningu.
Hlífið augunum með þar til gerðum
rafsuðuglerjum (DIN Stig 9-10), sem þú festir í
meðfylgjandi hjálm. Notið ávallt suðuvettlinga og
þurr hlífðarföt sem algjörlega eru laus við olíu og
fitu til að koma í veg fyrir að húðin sé opinberuð
útfjólubláum geislun rafsuðunnar.
Athugið vel!
Ljósgeisli rafsuðunnar getur skemmt augu og
getur einnig orsakað bruna á húð.
Pinnasuða orsakar neista og dropa úr bráðnum
málmi. Það málstykki sem soðið er byrjar að glóa
og helst lengi mjög heitt.
38
25.01.2011
8:26 Uhr
Seite 38
Þegar að soðið er myndast gas sem að einnig
getur verið hættuleg. Hvert rafstuð getur verið
lífshættulegt.
Farið ekki nær en 15 m á meðan að soðið er.
Hlífðu þér (og öðru fólki í nánd) fyrir þeim
mögulegu hættum sem að rafsuða hefur að fylgja.
Varúð: Það fer eftir tengingu en aðrir notendur
sömu hringrásarinnar og rafsuðurækið geta orðið
fyrir truflunum.
Varúð!
Þegar að rafmagnshringrás er ofnotuð geta aðrir
notendur sömu hringrásarinnar orðið fyrir truflunum.
Ef óvissa er, ætti að fá ráðleggingar frá
rafmagnsfyrirtækinu.
Mögulegar hættur við rafsuðu
Það eru margar hættur sem myndast við rafsuðu. Það
er því notanda tækisins mjög mikilvægt; að fara eftir
eftirfarandi reglum, að setja sig eða aðra ekki í hættu,
koma í veg fyrir mögulegan skaða á fólki og tækjum.
1. Vinna eða viðgerðir á hlið rafmagnstengingar
tækisins, t.d. á rafmagnsleiðslum, innstungum,
klóm osfrv. mega eingöngu vera framkvæmdar af
fagfólki með þar til gerð réttindi. Þetta gildir
sérstaklega ef að aukalegar rafmagnsleiðslur eru
tengdar við rafsuðutækið.
2. Ef slys eiga sér stað, takið þá tækið tafarlaust úr
sambandi við strau.
3. Ef að skammtengingar eiga sér stað verður að
taka tækið strax úr sambandi og hafa samband
við fagmann til að fara yfir tækið.
4. Athugið að það séu ávallt góðar tengingar á
suðuköplum.
5. Notið ávallt einangraða vettlinga á meðan að
soðið er. Þeir hlífa fyrir rafmagnsspennu
(hringrásarspennu rafsuðutækisins), skaðlegri
geislun (hita og útfjólublárri geislun) og glóandi
málmi og ögnum.
6. Notið fastann og góðan skóbúnað, skórnir ættu
einnig að vera rakaheldir. Lágir skór eru ekki við
hæfi þar sem að glóandi málmur eða agnir geta
dottið ofan í skóna og brennt húðina.
7. Notið réttan klæðnað, ekki nota fatnað sem
gerður er úr gerviefnum.
8. Horfið aldrei í suðulogann með berum augum,
notið ávallt suðuhjálm með leyfðum glerjum
samkvæmt DIN. Suðugeislinn gefur ekki bara frá
sér ljós og hita sem að getur blindað eða brennt
heldur einnig útfjólubláa geisla. Ef að augum er
ekki hlíft nægilega vel, getur þessi ósýnilega
útfjólubláa geislun valdið sjáanlegum og mjög
sársaukafullum hornhúðarskaða í augum sem
fyrst er að finna eftir nokkrar klukkustundir eftir að