Íslenska - IKEA BARKABODA Manual De Instrucciones

Ocultar thumbs Ver también para BARKABODA:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 17
ÍSLENSKA
12
Búið er að meðhöndla borðplötuna í
verksmiðjunni með vaxolíu og því þarfnast
hún ekki frekari meðferðar fyrr en farið
er að sjá á henni. Þegar hún er farin að
láta á sjá og er orðin þurr, ætti að bera á
hana BEHANDLA viðarolíu. Byrjið á því að
hreinsa yfirborðið og undirbúa það með því
að pússa það með fínum sandpappír eða
grófum svampi. Strjúkið meðfram æðunum
í viðnum. Strjúkið svo allt ryk af borðinu og
berið á þunnt lag af BEHANDLA viðarolíu
með pensli eða mjúkum klút. Leyfið
olíunni að síast inn í viðinn í um það bil 15
mínútur. Þurrkið þá restar af borðinu. Leyfið
yfirborðinu að þorna og endurtakið eftir
nokkra daga. Til að tryggja að borðplatan
haldi útliti sínu og eiginleikum um árabil ætti
að bera á hana BEHANDLA viðarolíu þegar
nauðsyn krefur. Viðkvæmari svæði, eins og
kringum eldavélar og vaska, ætti að bera á
oftar.
Hægt er að lagfæra rispur og minniháttar
bletti með því að pússa yfir með fínum
sandpappír. Munið að pússa alltaf í sömu
átt og æðarnar í viðnum liggja. Nota ætti
sápu eða vatn við dagleg þrif. Notið ekki
sterk efni til að þrífa borðplötuna. Setja
þarf FIXA hlíf neðan á borðplötu sem liggur
ofan á uppþvottavél eða ofni.
Varúð:
Skolið allar tuskur sem vættar hafa verið í
vörunni strax að notkun lokinni og geymið
svo í loftþéttum umbúðum til að forðast
sjálfkveikju.

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Este manual también es adecuado para:

703.314.69

Tabla de contenido