Leiðbeiningar
Þessi kaffikvörn er ætluð til að mala kaffibaunir í litlu magni og er til einkanota
eingöngu. Á sama hátt og með önnur raftæki skal nota rafrænu Emma-
kaffikvörnina með aðgát til að forðast líkamleg meiðsli, eldhættu eða skemmdir
á vélinni. Lesið leiðbeiningarnar vandlega fyrir notkun.
· Kaffikvörnin er tilbúin til notkunar. Fargið umbúðunum á réttan hátt.
· Tryggið að tækið sé ekki skemmt og virki vel.
· Setjið kaffikvörnina á lárétt yfirborð.
· Tryggið að snúran sé utan við tækið þegar baununum
er hellt í geyminn. Fyllið ílátið ekki um of.
· Setjið kaffikvörnina í samband og ræsið hana með því að ýta á
hnappinn. Haldið um lokið þegar verið er að mala baunirnar.
· Kaffikvörnin má virka í mesta lagi í 30 sekúndur hverju sinni. Ef farið
er umfram þennan tíma getur vélin ofhitnað og eldhætta skapast!
· Slökkvið á kaffikvörninni og takið hana úr sambandi þegar
búið er að mala baunirnar. Tæmið kaffikvörnina.
Öryggi
1. Lesið notkunarhandbókina vandlega fyrir notkun
og geymið hana til að geta leitað í hana síðar.
2. Setjið kvörnina aðeins í samband við 220–240V
innstungu og notið hana á tilætlaðan hátt.
3. Takið kvörnina ávallt úr sambandi þegar hún er ekki í notkun.
4. Dýfið kvörninni ekki í vatn eða aðra vökva.
5. Börn sem eru 8 ára og eldri og aðilar með skerta líkamlega, skynræna eða
andlega hæfni eða aðilar sem skortir reynslu eða hæfni mega nota kvörnina
ef þeir hafa hlotið leiðsögn eða leiðbeiningar um hvernig nota eigi ristina á
öruggan hátt af hálfu aðila sem ber ábyrgð á öryggi þeirra og hafi skilið þær
hættur sem um er að ræða.
6. Hafa skal umsjón með börnum til að tryggja að þau leiki sér ekki með
kvörnina. Börn eru ekki alltaf meðvituð um hugsanlegar áhættur.
Kennið börnum að fara með raftæki á ábyrgan hátt.
IS – Emma rafmagns kaffikvörn
29