HREINSUN OG VIÐHALD
VARÚÐ: Aðeins skal hreinsa og sinna viðhaldi á steikingarpönnunni þegar hún er köld og
skrúfað er fyrir gasinntak á gaskúti.
Ráðlagt er að hreinsa og viðhalda tækinu að minnsta kosti einu sinni í mánuði.
ÞRIF
Með því að „brenna af" steikingarpönnunni eftir hverja notkun (í um 15 mínútur) haldast
matarleifar í lágmarki.
YTRA YFIRBORÐ
Notaðu milt hreinsiefni eða bökunarsóda í heitu vatni. Einnig má nota ræstiduft sem ekki er
svarfandi á erfiða bletti og skola svo með vatni.
Ef innra byrði loks steikingarpönnunnar lítur út eins og flagnandi málning hefur brunninn
fita breyst í kolefni og er að flagna af. Hreinsaðu þetta vandlega með heitri sápuvatnslausn.
Skolaðu með vatni og leyfðu að þorna alveg. ALDREI MÁ NOTA OFNHREINSI.
INNRA BYRÐI BOTNS STEIKINGARPLÖTU
Fjarlægðu leifar með bursta, sköfu og/eða svampi og þvoðu svo með sápuvatnslausn.
Skolaðu með vatni og leyfðu að þorna.
PLASTYFIRBORÐ
Þvoðu plastyfirborð með mjúkum klút og heitu sápuvatni. Skolaðu með vatni. Ekki nota
hreinsiefni sem er svarfandi, fituhreinsa eða grillhreinsiþykkni á plasthluta.
ELDUNARPANNA
Notaðu milda sápuvatnslausn. Einnig má nota ræstiduft sem ekki er svarfandi á erfiða bletti
og skola svo með vatni.
FITUBAKKI
Ekki fjarlægja fitubakkann við notkun.
Athugaðu fitubakkann tímanlega og fjarlægðu olíu þegar hann er 1/3 fullur.
100