Rothenberger Industrial 030954E Instrucciones De Uso página 51

Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 30
030954-61_UniversalAnleitung_26 Sprachen.qxd:PRINT
NOTKUN
Þessi öflugi brennari hentar til að hita, skeyta saman, logsjóða plötur, tjöruefni, þakeinangrun,
steinsteypuþurrkun, sem og til að eyða illgresi og til að fjarlægja mosa. Öll önnur notkun eða breyting á
tækinu er ekki leyfileg og hefur í för með sér mikla hættu á slysum.
Einungis má nota tækið með própan eða própan-bútan-blöndu og með viðeigandi stöðugum stilli.
Einungis má nota endurvinnanlegar LPG-flöskur. Hættulegt getur verið ef þið reynið að tengja önnur
gasílát við tækið.
Iðnaðarmenn verða að nota öryggisloka á slöngu. Einnig er mælt með því að hann sé notaður heima fyrir.
Öryggislokinn fæst hjá framleiðanda, vörunúmer 035925E.
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
Ráðstafanir áður en glasflaskan er fest við
- Notið einungis ílát/brennarahluta sem lýst er.
- Notkun íláta/brennarahluta, sem ekki er mælt með, getur verið hættuleg.
- Notið einungis varahluti sem ætlast er til að séu notaðir.
- Festið aldrei glerflösku við án þess að lesa meðfylgjandi leiðbeiningar.
- Áður en þið festið gasílátið við skuluð þið ganga úr skugga um að þéttingin (á milli þrýstistillis og gasílátsins) sé til
staðar og í lagi.
- Notið ekki tæki sem er með skemmdum eða slitnum þéttingum. Notið ekki tæki sem er með leka eða skemmt eða
virkar ekki samkvæmt fyrirmælum.
- Gangið úr skugga um að slangan sé ekki skemmd.
- Aldrei má taka tæki með skemmdan hluta í notkun.
- Skiptið um eða festið glasflöskuna á vel loftræstu svæði, helst úti við og í fjarlægð frá öllum hugsanlegum kveikjugjöfum,
s.s. opnum eldi, logum, rafmagnseldunarbúnaði og í fjarlægð frá öðrum einstaklingum.
- Festið leiðslur við tækið áður en gasflaska er fest við.
- Gangið úr skugga um að öll samskeyti séu þétt og gætið þess að gasþétt tenging sé til staðar áður en kveikt er á
brennaranum.
- Ekki má reykja þegar gasflaskan er fest við. Farið eftir leiðbeiningum fyrir skiptingu íláts Samsetninguna skal alltaf
hefja með því að koma gasílátinu fyrir.
- Gætið þess að gasflaskan hitni ekki eða slöngurnar brennist. Skiptið um viðbótarbúnað ef þörf er á
Notkunaraðstæður
- Komið tækinu þannig fyrir að það geti ekki fallið til hliðar eða niður.
- Til að koma í veg fyrir vökvaleka skal einungis nota gasflöskuna í lóðréttri stöðu.
- Tækið má ekki nota neðanjarðar.
- Tækið má ekki vera nálægt hitagjöfum (miðstöð, ofni, opnum eldi o.s.frv.).
- Notið einungis í vel loftræstum rýmum, og fara skal eftir reglum viðkomandi lands:
- varðandi meðhöndlun brunalofts
- til að forðast samansöfnun hættulegs magns af óbrenndu gasi
- Tækið má einungis nota í mikilli fjarlægð frá eldfimum efnum eða feitum efnum.
- Notið hlífðarfatnað sem er laus við fitu.
- Gætið þess að anda ekki að ykkur gufum.
- Þegar hlé er gert á vinnunni skal alltaf loka brennarahlutanum.
- Meðan á notkun stendur skal ekki skilja tækið eftir eftirlitslaust; ef loginn er slökktur getur myndast gas en það getur
haft í för með sér hættu.
- Tækið verður alltaf að vera í fjarlægð frá börnum og þess skal gætt að þau hafi ekki aðgang að því.
- Þegar ný gasflaska er notuð og tækið er kalt getur myndast óstöðugur logi sem slokknar eftir stutta stund.
- Eftir notkun tækisins, einnig ef um stutta notkun er að ræða, má ekki snerta brennarann til að koma í veg fyrir bruna.
VARÚÐ! Aðgengilegir hlutir geta verið mjög heitir. Haldið börnum í fjarlægð frá tækinu.
Aðgerðir ef um leka er að ræða
Ef gas losnar frá tækinu (gaslykt eða loftbólur myndast við þéttniprófun) skuluð þið strax fara út með tækið á stað þar
sem mikil hreyfing er á loftinu og engir kveikjugafar eru nálægt, þar sem hægt er að finna lekann og fjarlægja hann.
Þéttniprófun á tækinu skal einungis framkvæma utandyra. Notið aldrei loga til að finna leka heldur notið úða til að finna
leka eða sápulöður! Fylgist með tækinu alveg þangað til allt gas er horfið.
51
09.01.2018
15:05

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Este manual también es adecuado para:

030955e030957e030958e030961e1500000930

Tabla de contenido