166
|
Wallbox eMH3 – Viðhald
Viðhald
Fyrir utan prófunina á einum eða fleiri innbyggðum lekastraumsrofum þarfnast vegghleðslustöðin ekki
viðhalds. Engu að síður mælum við með því að vegghleðslustöðin sé þrifin með reglulegu millibili og virkni
hleðslutengja prófuð:
Við þrif á vegghleðslustöðinni skal eingöngu nota þurra tusku. Ekki má nota tærandi hreinsiefni, bón
eða leysiefni (t.d. hreinsað bensín eða málningarþynni) þar sem þau geta aflitað upplýsingafleti á
vegghleðslustöðinni.
Alls ekki má hreinsa vegghleðslustöðina með háþrýstidælu eða álíka búnaði.
Athugið reglulega með skemmdir á fasttengdu hleðslusnúrunni eða hleðslutenglinum á
vegghleðslustöðinni.
Tæknilegar viðbótarupplýsingar
Við uppsetningu á vegghleðslustöðinni og lagfæringu á villum og bilunum við notkun þarf að styðjast við
tæknilegar viðbótarupplýsingar sem koma fram ásamt tæknilýsingu fyrir allar gerðir í framleiðsluröðinni í
sérstakri uppsetningarhandbók fyrir faglærða rafvirkja.
Samantekt á tæknilegum upplýsingum fyrir vegghleðslustöðina er einnig að finna á upplýsingablöðum fyrir
vöruna.
Hægt er að sækja þessi skjöl af vefsíðu ABL með eftirfarandi tengli:
ATHUGIÐ
Birting viðbótarupplýsinga á tölvu, spjaldtölvu eða snjallsíma
Tæknilegu viðbótarupplýsingarnar eru aðgengilegar á PDF-sniði (Portable Document Format).
Til að opna skjölin þarf að nota ókeypis forritið Adobe Acrobat Reader eða sambærilegan hugbúnað
til að skoða PDF-skjöl.
Nánari upplýsingar um vöruúrval okkar og fáanlegan fylgibúnað er að finna á vefsíðu okkar
www.ablmobility.de.
Farið á:
https://www.ablmobility.de/de/service/downloads.php
https://www.ablmobility.de