IKEA HATTHOLMEN Manual De Instrucciones página 15

Ocultar thumbs Ver también para HATTHOLMEN:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 24
15
Svona berðu viðarvörina á:
Veldu skuggsælan stað til að þrífa, bera á og
þurrka húsgögnin. Forðist beint sólarljós.
1.Þrífðu húsgögnin með mjúkri tusku, vatni
og mildri sápu, ef þörf krefur. Þurrkaðu með
hreinni og þurri tusku.
Notaðu mjúkan bursta til að fjarlægja erfiða
bletti. Ef þörf krefur, má líka pússa yfirborðið
með fínum sandpappír. Gættu þess að
strjúka í sömu átt og æðarnar í viðnum
liggja. Ekki nota stálull eða stálbursta –
málmflísar geta orðið eftir í viðnum og
ryðgað. Ef viðartrefjar standa upp úr viðnum
eftir þrifin þarf að pússa yfirborðið með
fínum sandpappír.
2. Hristu flöskuna vel og berðu á þunnt,
jafnt lag af viðarvörn með pensli eða
svampi. Berðu á allt yfirborðið í einu og
alltaf í sömu átt og æðarnar í viðnum liggja.
3. Vatnsviðarvörn þornar hratt svo
nauðsynlegt er að þurrka umframmagn
af strax eftir að hún er borin á, með þurri
tusku.
Þvoðu pensla og hendur með sápu og vatni.
Geymsla:
Áður en húsgögnin eru sett í geymslu
fyrir veturinn ætti að þrífa þau og láta
þau þorna vel. Ef mögulegt er, ætti að
geyma húsgögnin á svölum og þurrum
stað innandyra. Ef húsgögnin eru geymd
utandyra ætti að hafa þau undir þaki ef
mögulegt er og breiða yfir þau. Ef húsgögnin
standa þar sem rignir eða snjóar ætti að
breiða yfir þau og halla þeim svo renni af
þeim. Eftir að rignt hefur eða snjóað þarf að
strjúka bleytu af húsgögnunum - sérstaklega
af láréttum flötum. Gættu þess að loft geti
leikið um húsgögnin svo forðast megi raka
og myglu.
ATHUGIÐ!
Til að auka stöðugleika húsgagnanna ætti að
herða skrúfurnar reglulega.

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Este manual también es adecuado para:

KlövenBetsholm

Tabla de contenido