Íslenska - IKEA FLOALT Manual De Instrucciones

Ocultar thumbs Ver también para FLOALT:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 14
Íslenska
BÆTTU LJÓSI VIÐ STJÓRNTÆKIÐ:
Áður en þú notar ljósið þarf að para það við
stjórntækið.
Til að bæta fleiri ljósum við, skaltu fylgja skrefunum
hér að neðan:
1. Gakktu úr skugga um að ljósið sé tengt og að
kveikt sé á aðalrofanum.
2. Haltu stjórntækinu nálægt ljósinu sem þú vilt
bæta við (ekki meira en í fimm cm fjarlægð).
3. Ýttu á og haltu pörunarhnappnum inni
a.m.k. tíu sekúndur. Rautt ljós mun lýsa stöðugt
á stjórntækinu. Ljósið mun dofna og blikka
einu sinni til að gefa til kynna að pörunin hafi
heppnast.
Hægt er að para allt að tíu ljós við eitt stjórntæki.
Aðeins er hægt að para eitt ljós í einu. Ef ljósin eru
nálægt hvort öðru, aftengið þá þau sem hafa nú
þegar verið pöruð frá aðalrofanum.
VARÚÐ:
NOTIÐ EKKI MEÐ VENJULEGUM LJÓSDEYFI.
Notið aðeins stýringu sem fylgir með eða er
tilgreind í þessum leiðbeiningum til að stýra
perunni. Ljósaperan virkar ekki eðlilega þegar
hún er tengd við venjulegan (glóperu) ljósdeyfi
eða -stýringu. Aðeins hægt að stýra með IKEA
ljósastýringarvörum.
Hægt er að skipta á milli ljóslita 2200K (hlýr bjarmi),
2700K (hlý hvítt) og 4000K (kald hvítt).
ENDURRÆSTU TÆKIÐ
Kveiktu og slökktu á rofanum sex sinnum.
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
Tegund: L1527 FLOALT
L1528 FLOALT
L1529 FLOALT
Inntak: 220-240 Vac 50-60Hz
Drægi: 10 m á opnu svæði
Rekstrartíðni: 2405-2480Mhz
Aflsafköst: 10 dBm
í
Framleiðandi: IKEA of Sweden AB
Heimilisfang: Box 702, SE-343 81, Älmhult,
SWEDEN
Táknið með mynd af ruslatunnu með krossi yfir
þýðir að ekki má farga vörunni með venjulegu
heimilissorpi. Vörunni þarf að skila í endurvinnslu
eins og lög gera ráð fyrir á hverjum stað fyrir
sig. Með því að henda slíkum vörum ekki með
venjulegu heimilissorpi hjálpar þú til við að draga
úr því magni af úrgangi sem þarf að brenna eða
nota sem landfyllingu og lágmarkar möguleg
neikvæð áhrif á heilsu fólks og umhverfið. Þú færð
nánari upplýsingar í IKEA versluninni.
9

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido