Íslenska - IKEA GRILLSKÄR Manual De Instrucciones

Ocultar thumbs Ver también para GRILLSKÄR:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 34
Íslenska
GRILLSKÄR kolagrill
VARÚÐ
Ef þeim viðvörunum sem taldar eru upp hér
í leiðbeiningunum er ekki fylgt eftir, getur það
leitt til alvarlegra líkamsáverka eða banaslysa, eða
valdið eignaspjöllum vegna elds eða sprengingar.
Öryggistákn (
) gefa til kynna mikilvægar
öryggisupplýsingar.
Vöruna MÁ AÐEINS NOTA UTANDYRA. Notist
ALDREI í lokuðu rými eins og bílskýli, bílskúr,
lokuðum palli, garðskýli eða undir hvers konar
yfirbyggingu.
Yfirfylltu grillið ekki af kolum og láttu kolin
ekki snerta ytri skel grillsins.
Grillið ætti að vera sett saman á öruggan hátt
fyrir notkun
Snertu aldrei heita hluta grillsins með berum
höndum.
Ekki nota innandyra!
Notkun innandyra getur orðið til þess
að eitraðar lofttegundir safnist upp og valdi
líkamstjóni eða jafnvel bana.
Notaðu aðeins utandyra á vel loftræstu svæði.
Ekki nota inni í bílskúrum, byggingum eða í öðru
lokuðu rými.
ATHUGAÐU! Þetta grill má aldrei nota undir
eldfimri yfirbyggingu.
VARÚÐ! Grillið verður mjög heitt. Ekki að færa
það til meðan það er í notkun.
VARÚÐ! Haltu börnum og gæludýrum í
öruggri fjarlægð.
Hvers kyns breytingar á grillinu geta reynst
hættulegar.
Aldrei skilja grillið eftir eftirlitslaust þegar það
er í notkun.
Fylgdu ávallt leiðbeiningum um þrif og
umhirðu og sinnið viðhaldi reglulega.
Þegar grillinu er komið fyrir þarf að gæta þess
að það sé í að minnsta kosti eins metra fjarlægð frá
eldfimum efnum eða byggingum.
Ekki bæta grillvökva, eða kolum sem vætt hafa
verið með grillvökva, á heit kol.
Fjarlægðu ekki ösku fyrr en öll kol hafa
brunnið upp og grillið er orðið kalt.
Varastu að vera í fatnaði með löngum og
víðum ermum þegar grillað er.
Ekki nota grillið í miklum vindi.
Ekki snerta grillið til að athuga hvort það sé
orðið heitt.
Ekki nota vatn til að slökkva loga eða kæla
niður notuð kol.
Láttu kolin alltaf brenna upp eða slökkvið í
glæðum að notkun lokinni.
Notaðu alltaf grillhanska þegar kveikt er upp,
grillað og loftræsting stillt.
Notaðu viðeigandi grilláhöld við
eldamennskuna.
Ekki má losa heit kol á stöðum þar sem þau
geta skapað eldhættu.
Settu grillið ekki í geymslu eða undir ábreiðu
fyrr en slokknað hefur í kolunum og þau hafa verið
fjarlægð og grillið er orðið kalt.
Þetta grill hentar ekki til notkunar í ferðabílum
eða á bátum.
Grillið ætti aldrei að nota sem hitara.
VARÚÐ! Ekki nota bensín, spritt eða
kveikjaravökva til að kveikja upp í grillinu eða
glæða eldinn! Notaðu aðeins kveikjara sem uppfylla
EN 1860-3 Evrópustaðalinn (innan Evrópu).
VARÚÐ! Notaðu ekki bensín, spritt eða
kveikjaravökva til að kveikja upp í grillinu eða
glæða eldinn! Notaðu aðeins kveikjara sem uppfylla
viðeigandi staðla í viðkomandi löndum (utan
Evrópu).
19

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido