IS Notkunarleiðbeiningar fyrir grímur Serie 7000
Mikilvægar ábendingar til notandans
Þessar leiðbeiningar gilda einungis í tengslum við notkunarleiðbeiningar
fyrir gas- og agnasíur. Sé ekki farið eftir þessum ábendingum varðandi
notkun vörunnar og ef öndunarhlífar eru ekki notaðar í mengaða
umhverfinu getur það spillt heilsunni og valdið varanlegum skaða.
§ Þessi öndunarhlíf er ekki súrefnisgjafi (02)
§ Notið tækið aðeins í nægilega vel loftræstu rými,
(19,5 rúmmáls-% súrefnis).
§ Grímu og síur verður að velja í samræmi við eðli mengunarefnanna. (Sjá töflu
1).
§ Í lofttegundum með ófullnægjandi viðvörunareinkenni má aðeins nota síur, ef
gefnar eru sérstakar notkunarreglur þar að lútandi.
§ Þar sem skilyrðin eru óþekkt eða breytileg verður að klæðast
einangrunarbúnaði.
§ Yfirgefið vinnurýmið samstundis og skiptið um öndunargrímu, ef:
o gríman er sködduð,
o öndunarerfiðleika verður vart,
o svimi eða þreyta koma fram.
§ Fylgið notkunarleiðbeiningunum þegar gríman er notuð.
§ Varan hefur ekki að geyma neina málmhluti sem leitt geta til íkveikju í
sprengifimu andrúmslofti.
§ Vakni spurningar varðandi notkun vörunnar, snúið ykkur þá til MOLDEX-
METRIC.
§ Auk þess skal við notkun öndunarhlífa fylgt fyrirmælum og ákvæðum sem um
þær gilda.
§ Skegg, langir bartar eða önnur frávik á þéttisvæðum geta leitt til þess að
búnaðurinn falli ekki fyllilega þétt að andlitinu.
§ Grímunum má ekki breyta á nokkurn hátt.
§ Notendur grímanna og síanna skulu kunna skil á réttri meðferð þeirra.
§ Grímu og síu skal geyma í mengunarlausu umhverfi þegar þær eru ekki í
notkun.
Athugið: Ekki má vinna með síubúnað í óloftræstum geymum og þröngu
rými.
Undirbúningur undir notkun hálfgrímunnar
Hálfgrímuna skal yfirfara fyrir hverja notkun. Komi skemmdir eða gallar í ljós
verður að skipta um grímu eða gera við hana.
Aðgætið
§ brot, sprungur og óhreinindi á grímunni.
§ virkni, afmyndanir, sprungur og hreinleika innöndunar- og útöndunarventils.
§ hvort höfuðböndin séu óskemmd og nægileg teygjanleg.
Hálfgríman sett á
Setjið hálfgrímuna yfir munn og nef og komið höfuðböndunum fyrir eins og
myndin sýnir. Krækið neðri böndunum saman á hnakkanum. Sjáið til þess að
gríman falli þétt að andlitinu með því að toga í enda höfuð- og hnakkabands.
Gangið úr skugga um að gríman falli þétt að andlitinu, áður en farið er inn á
vinnusvæðið.
Þéttleiki kannaður með undirþrýstingi
Haldið fyrir opið á loki síuhússins með lófanum, andið rólega að ykkur. Ef gríman
dregst lítillega saman er hún nógu þétt. Ef vart verður innstreymis lofts, skal
breyta staðsetningu grímunnar eða spennunni á böndunum. Endurtakið þessa
prófun þar til gríman fellur þétt að andlitinu.
Þéttleiki prófaður með yfirþrýstingi
Haldið fyrir útöndunarventilinn með lófanum, andið rólega frá ykkur. Ef ekkert loft
streymir út milli grímu og andlits er hún nógu þétt. Ef vart verður útstreymis lofts,
skal breyta staðsetningu grímunnar eða spennunni á böndunum. Endurtakið
þessa prófun þar til gríman fellur þétt að andlitinu.
Ef ekki tekst að láta grímuna falla nægilega þétt að andlitinu, farið þá alls
ekki inn á hættusvæðið. Hafið samband við öryggisfulltrúa.
Drop Down Mode og Lock Mode
Drop Down Mode: Til þess að hægt sé að bera grímuna framan á bringunni skal
koma böndunum fyrir samkvæmt mynd 7.
Lock Mode: Til þess að festa böndin skal þeim komið fyrir samkvæmt mynd 8.
22
Myndir 1, 2 og 3
Mynd 4
Mynd 5
Myndir 6, 7 og 8