VÖRUÖRYGGI (ÁFRAM)
6. Börn skulu vera undir eftirliti til að tryggja að þau leiki sér ekki
með tækið.
7. Haldið höndum, áhöldum og öðrum hlutum frá fylgihlutnum
með blöðum sem rífa og sneiða og frá hreyfanlegum hlutum á
meðan þeir eru í notkun, til að draga úr hættu á alvarlegum
meiðslum á fólki eða skemmdum á fylgihlutnum.
8. Ekki nota tækið utanhúss.
9. Ef matur festist í blaði eða í troðararörinu skal slökkva á
mótornum (0) og taka fylgihlutinn í sundur til að fjarlægja
matinn úr honum.
10. Athugið hvort aðskotahlutir séu í hakkavélarhúsinu fyrir notkun.
11. Ekki nota fingur til að skafa burt mat frá disknum þar sem hann
kemur út. Hætta á skurðarsárum.
12. Forðast að snerta hluti sem hreyfast. Haldið fingrum frá opinu
þar sem maturinn kemur út.
13. Notkun fylgihluta, sem KitchenAid mælir ekki með eða selur,
getur valdið eldsvoða, raflosti eða meiðslum.
14. Setjið matinn aldrei í með höndunum. Notið alltaf troðarann.
15. Hnífar eru beittir. Sýnið aðgát þegar hnífar eru settir í eða teknir
úr.
16. Ekki taka matinn úr fyrr en slökkt er á hrærivélinni (0),
hraðastillirinn stilltur á „0" og hnífarnir hafa stöðvast.
17. Ekki nota tækið ef drifbúnaður eða hreyfanlegir hlutar þess eru
skemmdir. Skilið tækinu til næsta viðurkenndrar
þjónustumiðstöðvar til skoðunar, viðgerðar eða stillingar á
rafmagns- eða vélrænum búnaði.
18. Ekki láta snúruna á hrærivélinni hanga fram af borði eða bekk.
19. Sjá einnig kaflann um mikilvægar öryggisráðstafanir í
notkunar- og meðhöndlunarbæklingnum fyrir hakkavélina.
20. Til að koma í veg fyrir skemmdir má ekki setja húsið fyrir
fylgihluti á kaf í vatn eða aðra vökva.
21. Látið tækið kólna alveg áður en hlutir eru settir á eða teknir af
og áður en tækið er þrifið.
22. Skoðið kaflann „Umhirða og hreinsun" fyrir leiðbeiningar um
þrif á yfirborði þar sem matvæli hafa verið.
86