Þessar notkunarleiðbeiningar innihalda mikilvægar upplýsingar um mátun og
notkun 7126 axlarstoðar.
2 Notkun
2.1 Ætluð notkun
Stoðina má aðeins nota fyrir öxl og aðeins í snertingu við óskaddaða húð.
Nota verður hlífina í samræmi við ábendingar.
2.2 Ábendingar um notkun
•
Erting á axlarsvæðinu
•
Hrörnun snúningsvöðva axlar (rotator cuff)
•
Sina- og vöðvabólga á axlarsvæðinu
•
Slitgigt í öxl
Læknir verður að segja fyrir um ábendingar.
2.3 Frábendingar
2.3.1 Ófrávíkjanlegar frábendingar
Ekki þekktar.
2.3.2 Varúðarráðstafanir
Hafið samband við lækni ef einhver eftirfarandi einkenna koma fram:
húðsjúkdómar/áverkar, bólga, þrútin útbrot með bólgu, roði og ofhiti á
svæðinu sem er meðhöndlað, áberandi æðahnútar, sérstaklega með skertu
flæði til baka, skert flæði í eitlum, þar á meðal óljós bólga mjúkvefs undir
stoðinni, truflun á tilfinningu og flæði á svæði handleggs og handar.
2.4 Verkun
Þessi stoð auðveldar skynhreyfiaðgerðir og stuðlar að vöðvajafnvægi í öxl.
Stoðin heldur hita á öxlinni og og hjálpar til við að lina verki.
3 Öryggi
3.1 Skilgreining hættumerkja
VARÚÐ
ÁBENDING
50 | Ottobock
Viðvörun um hættu á slysum eða meiðslum.
Viðvörun um hættu á tæknilegum skemmdum.