DAB-ÚTVARPSSTILLING
VAL Á STÖÐ (SELECTING A STATION)
Til að fá aðgang að stöðvalista útvarpsins skaltu snúa CONTROL-skífunni til að fletta í
gegnum tiltækar stöðvar í stafrófsröð. Ýttu því næst á skífuna til að staðfesta stöðvarval.
FORSTILLING UPPÁHALDSSTÖÐVA (FAVOURITE STATION PRESETS)
Í Eames Radio getur þú geymt forstilltar 10 uppáhaldsstöðvar sem þú getur nálgast með
hnappinum „PRESETS" (forstillingar) framan á útvarpinu.
Til að vista stöðina sem þú ert að hlusta á sem forstillingu skaltu ýta á hnappinn „PRESETS"
og halda honum inni og nota svo CONTROL-skífuna til að finna ónotað (tómt) pláss. Ýttu
nú á skífuna til að geyma stöðina.
Til að hlusta á vistaða uppáhaldsstöð skaltu ýta á hnappinn „PRESETS", nota því næst
CONTROL-skífuna til að fletta í gegnum möguleikana og velja stöð með því að ýta á
skífuna.
Ef þú vilt breyta tiltekinni forstillingu síðar meir skaltu endurtaka ofangreinda ferlið til að vista
stöð. Skrifað verður sjálfkrafa yfir fyrri forstillingu.
Station list
<BBC R6M
>
Preset Recall
<1: (Empty)
>
Preset Recall
<1: BBC R6M >
IS
07