Íslenska - IKEA TRADFRI Manual Del Usuario

Ocultar thumbs Ver también para TRADFRI:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 14
ÍSLENSKA
HVERNIG ER LÝSINGU STÝRT
Með rofanum á snúrunni geturðu kveikt eða
slökkt á öllum búnaði sem tengdur er við
TRÅDFRI drifbúnaðinn en ef þú vilt dimma eða
tengja vörur við IKEA Smart lighting þarftu að
kaupa sérstakan TRÅDFRI stýrisbúnað (t.d.
fjarstýringu).
TRÅDFRI stýrisbúnaðinn þarf að para við
TRÅDFRI drifbúnaðinn. Ef þú ert með fleiri
en einn (1) drifbúnað geturðu parað hvern
og einn við stjórnbúnaðinn þannig að hægt
er að slökkva eða kveikja eða dimma allar
samsetningar samtímis.
Til að tryggja að aðgengi að drifbúnaðinum sé
sem best skaltu para TRÅDFRI drifbúnað við
stjórnbúnaðinn áður en þú finnur endanlegan
stað fyrir drifbúnað og snúrur.
STJÓRNBÚNAÐUR PARAÐUR VIÐ TÆKIÐ
1. Tengdu a.m.k. eitt (1) tæki við drifbúnaðinn
áður en þú byrjar að para. Gakktu úr
skugga um að rafmagnssnúran sé tengd við
rafmagn og að rofinn á snúrunni sé stilltur
á ON.
2. Finndu pörunarmerkið
Haltu stjórnbúnaðinum nálægt
pörunarmerkinu (ekki meira en 5 cm
fjarlægð).
3. Ýttu og haltu pörunarhnappinum
stjórnbúnaðinum inni í a.m.k. 10 sekúndur.
Rautt ljós lýsir stöðugt á fjarstýringunni.
Tækið sem tengt er við drifbúnaðinn byrjar
að dofna og blikkar einu sinni til að gefa
til kynna að drifbúnaðurinn sé tengdur við
stjórnbúnaðinn.
TÆKIN SETT Á VERKSMIÐJUSTILLINGU
Ef drifbúnaðurinn svarar ekki eða ef þú
vilt tengja drifbúnaðinn frá stjórnbúnaði
getur verið að þú þurfir að setja á
verksmiðjustillingu. Drifbúnaðurinn er
settur á verksmiðjustillingu með því að setja
bréfaklemmu eða álíka í litla gatið (merkt
RESET) á drifbúnaðinum og ýta laust.
á drifbúnaðinum.
á
MIKILVÆGT!
— Drifbúnaðinn skal eingöngu nota innanhúss
og hægt er að nota hann við hitastig frá
5ºC til 45ºC.
— Ekki skilja drifbúnaðinn eftir undir beinu
sólarljósi eða nálægt hitagjöfum, þar sem
það getur valdið ofhitnun.
— Ekki geyma fjarstýringuna í bleytu, raka
eða miklu ryki þar sem það getur valdið
skemmdum.
— Radíósvið á milli drifbúnaðarins og
stjórnbúnaðarins er mælt undir berum
himni. Mismunandi byggingarefni og
staðsetningar einingarinnar geta haft áhrif
á svið þráðlausrar tengingar.
LEIÐBEININGAR UM UMHIRÐU
Hreinsaðu drifbúnaðinn með þurrum mjúkum
klúti.
Notið aldrei slípiefni eða leysiefni þar sem slíkt
getur skemmt vöruna.
VIÐHALD
Ekki reyna að gera við tækið á eigin
spýtur það sem slíkt getur gert notanda
berskjaldaðan fyrir hættulegri rafspennu.
TÆKNILÝSING 30 W
Tegund: ICPSHC24-30EU-IL-1
Inngangsspenna: 220-240 Vac, 50-60 Hz
Útgangsspenna: 24 Vdc
Hámarksútgangsafl: 30 W
Aðeins til notkunar innanhúss
Radíósvið: 10 m í opnu rými.
Vinnslutíðni: 2405-2480 Mhz
Útgangsafl: 14 dBm
Táknið með mynd af ruslatunnu með krossi
yfir þýðir að ekki má farga vörunni með
venjulegu heimilissorpi. Vörunni þarf að skila
í endurvinnslu eins og lög gera ráð fyrir á
hverjum stað fyrir sig. Með því að henda
slíkum vörum ekki með venjulegu heimilissorpi
hjálpar þú til við að draga úr því magni af
úrgangi sem þarf að brenna eða nota sem
landfyllingu og lágmarkar möguleg neikvæð
áhrif á heilsu fólks og umhverfið. Þú færð
nánari upplýsingar í IKEA versluninni.
9

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido