-
Ef augljósar skemmdir eru á húsi og mælileiðslum tækisins,
-
Villur við mælingu,
-
Greinilegar afleiðingar af langvarandi geymslu við óæskilegar aðstæður og
-
Greinilegar afleiðingar af óæskilegum áhrifum af flutningi.
Ef þetta kemur upp skal án tafar slökkva á BENNING MM P3, taka hann úr sambandi
við mælistaði og tryggja að ekki sé hægt að nota hann áfram.
9.2 Þrif
Þrífið tækið að utan aðeins með hreinum, þurrum klút (eina undantekningin er
sérstakir hreinsiklútar). Notið ekki nein leysiefni og/eða grófkorna hreinsiefni til að
þrífa tækið. Gætið þess að rafhlöðuhólfið og rafhlöðutengin óhreinkist ekki af rafvökva
sem smitast út úr rafhlöðunum.
Ef óhreinindi af völdum rafvökva eða hvítar útfellingar eru í grennd við rafhlöðuna eða
rafhlöðuhólfið skal einnig þrífa þetta með þurrum klút.
9.3 Skipt um rafhlöðu
Losið alla spennu úr BENNING MM P3 mælinum áður en hann er
opnaður! Hætta af völdum rafmagns!
BENNING MM P3 notar tvær ísettar rafhlöður 1,5-V (LR 44).
Nauðsynlegt er að skipta um rafhlöðu (sjá mynd 9) þegar táknið fyrir rafhlöðu
birtist á skjánum.
Skipt er um rafhlöðu sem hér segir:
-
Fjarlægið mælileiðslurnar úr mælirásinni.
-
Stillið snúningsrofann 7 á „OFF".
-
Leggið BENNING MM P3 á hvolf og losið skrúfurnar á botni hússins.
-
Takið botn hússins varlega af.
Gætið þess að losa ekki neinar skrúfur á prentuðu rásinni á
BENNING MM P3 mælinum.
-
Takið tómu rafhlöðurnar úr rafhlöðuhólfinu.
-
Setjið nýjar rafhlöður í rafhlöðuhólfið og gætið þess að þær snúi rétt, plúspóllinn
snýr upp.
-
Smellið botni hússins aftur á efri hluta hússins og herðið skrúfurnar á ný.
Sjá mynd 9:
Leggið ykkar af mörkum til verndar umhverfisins! Setjið ekki
rafhlöðurnar í heimilissorpið. Hægt er að afhenda þær á safnstað
fyrir notaðar rafhlöður eða sérstakan úrgang. Fáið upplýsingar hjá
sveitarfélaginu.
9.4 Kvörðun
BENNING tryggir samræmi við tækniforskriftir og nákvæmni sem tilgreind eru í
notendahandbókinni fyrstu 12 mánuði eftir afhendingu.
Til að viðhalda uppgefinni nákvæmni mælinga þarf að kvarða tækið reglulega af
02/ 2018
Skipt um rafhlöður
BENNING MM P3
126