Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 24
Íslenska
Nokkur góð ráð
Veggplatan er úr náttúrulegum kvarsi og kvoðu.
Ólíkt veggplötu úr gegnheilum steini, er hún þétt í
gegn, slétt og varin fyrir blettum.
Umhirða og viðhald
Fyrir dagleg þrif, bleyttu mjúkan klút með heitu
vatni og mildu hreinsiefni eða sápu.
Forðastu að nota hreinsiefni sem inniheldur
olíu, hreinsiduft eða svarfefni. Ef yfirborðið er
of lengi í snertingu við hreinsiefni gæti það
valdið skaða eða breytt lit á yfirborðinu. Skolaðu
strax af með vatni til að draga úr áhrifum af
hugsanlega skaðlegum efnum.
Fjarlægðu erfiða bletti með ediki blandað með
vatni 50/50. Hreinsaðu yfirborðið eftir á með
vatni og þurrkaðu með mjúkum klút.
Fjarlægðu matarafganga með plast- eða
viðarspaða. Þrífðu svo yfirborðið með rökum
klúti til að koma í veg fyrir að maturinn skilji
eftir sig blett.
Borðplatan þolir flest hreinsiefni sem almennt
eru til heimilisnota. Ekki nota sterk efni eða
leysiefni eins og málningarleysir, ofnhreinsi eða
húsgagnahreinsi.
Ekki setja heita hluti beint á borðplötuna.
Notaðu alltaf pottastand eða hitaplatta til að
vernda yfirborðið. Sjóðandi vatn og slettur frá
heitum mat skemmir ekki borðplötuna.
Ekki nota hníf eða aðra beitta hluti beint á
borðplötunni. Það skemmir yfirborðið og bit
hnífsins. Skerðu alltaf á skurðarbretti.
Varastu að draga hluti með hvössum brúnum
eftir borðplötunni, það getur rispað hana.
Ekki setja brauðrist, kaffivél, ketil eða önnur
eldhústæki sem gefa frá sér hita beint á
samskeyti tveggja borðplatna þar sem hitinn
getur skemmt samskeytin.
14

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido