Íslenska - IKEA TRÅDFRI Manual De Instrucciones

Ocultar thumbs Ver también para TRÅDFRI:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 24
ÍSLENSKA
AÐGERÐIR Á FJARSTÝRINGU ÞRÁÐLAUSS
OPNARA/LOKARA
UPP:
Ýttu til að færa þráðlausu rúllugardínuna
upp.
NIÐUR:
Ýttu til að færa þráðlausu rúllugardínuna
niður.
Pörun: Bættu IKEA Home snjallvörum
við kerfið þitt. Sjá leiðbeiningar hér fyrir
neðan.
MIKILVÆGT: Þú þarft merkisendurvarpann
til að geta stjórnað rúllugardínunni með
fjarstýringunni.
TÆKJUM BÆTT VIÐ FJARSTÝRINGUNA
Þegar fjarstýringin er seld með þráðlausri
rúllugardínu og merkisendurvarpa (í sömu
pakkningu) er þegar búið að para þær saman.
Til að bæta við fleiri þráðlausum rúllugardínum
skaltu fylgja neðangreindum skrefum:
Gættu þess að kveikt sé á þráðlausu
rúllugardínunni.
1 Opnaðu lokið aftan á fjarstýringunni til að
finna pörunarhnappinn.
2 Ýttu stuttlega á báða hnappana á
gardínunni. Það vekur tækið og gerir það
móttækilegt fyrir pörun í tvær mínútur.
3 Haltu fjarstýringunni mjög nálægt
gardínunni sem þú vilt bæta við: ekki lengra
frá en 5 cm
.
4 Ýttu á pörunarhnappinn á fjarstýringunni og
haltu honum inni í a.m.k. 10 sekúndur.
5 Rautt ljós mun loga stöðugt á
fjarstýringunni. Hvítt ljós mun dofna og lýsa
á gardínunni þar til tækin hafa verið pöruð
saman.
Hægt er að para allt að fjórar gardínur við eina
fjarstýringu.
Gættu þess að para eina í einu. Ef þú lendir
í vandræðum við að para fleiri gardínur
skaltu aftengja tímabundið þær gardínur
sem þegar hefur verið bætt við með því að
fjarlægja rafhlöðuna úr þeim. Það liðkar fyrir
pörunarferlinu.
NOTKUN RÚLLUTJALDANNA
Til að færa tjöldin upp í efstu hæð
með fjarstýringunni
Ýttu einu sinni á upp hnappinn (í stutta stund)
á fjarstýringunni.
Til að færa tjöldin niður í forstillta hæð
með fjarstýringunni
Ýttu einu sinni á niður hnappinn (í stutta
stund) á fjarstýringunni.
Til að færa tjöldin upp með fjarstýringunni
Haltu inni upp hnappinum á fjarstýringunni.
Tjöldin færast upp á meðan ýtt er á hnappinn
(þar til komið er að óskaðri hæð eða efstu
mögulegu hæð). Tjöldin stöðvast þegar
happinum er sleppt.
Færa tjöldin niður með fjarstýringunni
Haltu inni niður hnappinum á fjarstýringunni.
Tjöldin færast niður á meðan ýtt er á hnappinn
(þar til komið er að óskaðri hæð eða neðstu
mögulegu hæð). Tjöldin stöðvast þegar
happinum er sleppt.
Til að færa tjöldin í efstu hæð
með hnappinum á rúllutjöldunum
Ýttu einu sinni á efri (efsta) hnappinn á
rúllutjöldunum þar til þau hafa náð efstu stöðu.
Til að færa tjöldin niður í forstillta hæð
með hnappinum
Ýttu einu sinni á neðsta (neðri) hnappinn á
rúllutjöldunum þar til þau hafa náð neðstu
stöðu.
Til að færa rúllutjöldin upp
með hnöppunum
Haltu inni efri (efsta) hnappinum á
rúllutjöldunum.
Til að færa rúllutjöldin niður
með hnöppunum
Haltu inni neðsta (neðri) hnappinum á
rúllutjöldunum.
14

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido