Lekastraumsrofinn prófaður
Til að tryggja öryggi við notkun verður að prófa virkni innbyggða lekastraumsrofa vegghleðslustöðvarinnar samkvæmt
gildandi reglum á hverjum stað: Það er gert með hnappi á lekastraumsrofanum sem setur prófunina af stað.
Prófa skal vélræna virkni lekastraumsrofans með eftirfarandi hætti:
1 Takið lúguna fyrir lekastraumsrofann á hlið
vegghleðslustöðvarinnar úr lás með lyklinum og
lyftið henni upp.
2 Finnið og ýtið á hnappinn sem T er greypt í.
Lekastraumsrofinn á þá að leysa út og færa
x
veltirofann í miðstöðu.
3 Færið veltirofann í stöðu 0 og síðan aftur í stöðu I.
4 Lokið lúgunni fyrir lekastraumsrofann og læsið
henni með lyklinum.
HÆTTA
Hætta vegna rafspennu
Ef lekastraumsrofinn leysir ekki út þegar hann er prófaður má alls ekki halda áfram að nota vegghleðslustöðina!
Takið vegghleðslustöðina úr notkun (sjá næsta hluta) og hafið samband við faglærðan rafvirkja til þess að
x
láta lagfæra villuna.
1
1
0
+
0
1
0
1
0
Lekastraumsrofinn prófaður
153