Íslenska
Lestu leiðbeiningarnar vandlega og geymdu þær.
Helstu upplýsingar
• LIVBOJ hleðslutækið hentar með Qi-vottuðum tækjum.
• Hleðslutækið er vottað samkvæmt Qi 1.3.3 BPP tækniforskrift.
• Innbyggðir öryggiseiginleikar fyrir eftirlit með hitastigi og
rafmagni.
• LED stöðuvísir.
Notkunarleiðbeiningar
• Tengdu USB-C snúruendann í LIVBOJ hleðslutækið og
hinn endann í USB spennubreyti sem er tengdur við
vegginnstunguna. Athugaðu! USB spennubreytir og USB-C
snúra eru seld sér.
• Til að hlaða tækið þráðlaust skaltu setja það beint yfir
plúsmerkið (+) á hleðslutækinu. Þannig gengur hleðslan sem
best fyrir sig. Athugaðu! Fyrir sum tæki er nauðsynlegt að
virkja þráðlausa hleðslu.
• Ef rafhlaðan á tækinu sem þú vilt hlaða er alveg tóm, þá geta
liðið nokkrar mínútur þangað til hleðsla hefst.
26