Descargar Imprimir esta página

Electrolux LNC8ME18S Manual De Instrucciones página 84

Publicidad

Idiomas disponibles

Idiomas disponibles

84
www.electrolux.com
4.5 Kveikt á kælinum
Til að kveikja á kælinum er nóg að ýta á
hitastýringu kælisins. Til að kveikja á
kælinum með öðrum hætti:
1. Ýttu á Mode þar til samsvarandi tákn
birtist.
OFF-vísir kælisins blikkar.
2. Ýttu á OK til að staðfesta.
OFF-vísir kælisins slokknar og kveikt er á
kælihólfinu.
Til að velja annað innstillt
hitastig, sjá „Hitastilling".
4.6 Slökkt á kælinum
Hægt er að slökkva eingöngu á
kælihólfinu en hafa kveikt á frystinum.
1. Ýttu á Mode þar til vísir fyrir
kælihólfið birtist.
Vísirinn OFF fyrir kælinn og vísirinn fyrir
kælihólfið leiftra.
Hitastigsvísir kælisins sýnir bandstrik.
2. Ýttu á OK til að staðfesta.
OFF vísirinn fyrir kælinn birtist og slökkt
er á kælihólfinu.
4.7 FastCool aðgerð
Ef þú þarft að setja inn mikið magn af
volgum mat í kælihólfið, til dæmis eftir
matarinnkaup, stingum við upp á að þú
kveikir á FastCool aðgerðinni til að kæla
vörurnar hraðar og til að hindra að
maturinn sem fyrir er í kælinum hitni.
1. Ýttu á Mode þar til samsvarandi tákn
birtist.
FastCool vísirinn leiftrar.
2. Ýttu á OK til að staðfesta.
FastCool vísirinn er birtist.
Þessi aðgerð stöðvast sjálfkrafa eftir
u.þ.b. 6 klst.
FastCool aðgerðina er hægt að afvirkja
áður en hún endar sjálfkrafa með því að
endurtaka aðgerðina eða með því að
velja aðra hitastillingu fyrir kælinn.
4.8 Holiday hamur
Þessi hamur gerir þér kleift að hafa
kælihólfið tómt þegar farið er í langt frí og
draga úr vondri lykt, um leið og
frystihólfið getur virkað eðlilega.
1. Ýttu á Mode þar til samsvarandi
táknmynd birtist.
Holiday vísirinn leiftrar. Hitastigsvísirinn
sýnir hitastigið sem búið var að stilla.
2. Ýttu á OK til að staðfesta.
Holiday vísirinn er birtist.
Þessi hamur slekkur á sér
eftir að önnur hitastilling
hefur verið valin.
4.9 FastFreeze aðgerð
FastFreeze aðgerðin er notuð til að
forfrysta og hraðfrysta í röð í frystihólfinu.
Þessi aðgerð hraðar frystingu ferskra
matvæla og ver um leið matvæli sem
þegar eru geymd gegn óæskilegri hitnun.
Til að frysta fersk matvæli
skal virkja FastFreeze
aðgerðina minnst sólarhring
áður en maturinn sem á að
forfrysta er settur í
frystihólfið.
1. Til að virkja þessa aðgerð, skaltu ýta
á Mode hnappinn þar til samsvarandi
tákn birtist.
FastFreeze vísirinn leiftrar.
2. Ýttu á OK hnappinn til að staðfesta.
FastFreeze vísirinn er birtist.
Þessi aðgerð stöðvast sjálfkrafa eftir 52
klukkustundir.
Þú getur einnig afvirkjað FastFreeze
aðgerðina með því að endurtaka ferlið
þar til það slokknar á FastFreeze vísinum
eða með því að velja aðra hitastillingu
fyrir kælinn.
4.10 ChildLock aðgerð
Virkjaðu ChildLock aðgerðina til að læsa
hnöppunum gegn óviljandi notkun.
1. Ýttu á Mode þar til samsvarandi tákn
birtist.
ChildLock vísirinn leiftrar.
2. Ýttu á OK til að staðfesta.
ChildLock vísirinn er birtist.
Til að afvirkja ChildLock aðgerðina skal
endurtaka verklagið þar til ChildLock-
vísirinn slokknar.

Publicidad

loading