Ljós Hurðaopnara; Algengar Spurningar - LiftMaster myQ LM70EVFF Instrucciones De Montaje

Ocultar thumbs Ver también para myQ LM70EVFF:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 162
33
Að skipta um rafhlöður í fjarstýringunni
Rafhlaða fjarstýringarinnar:
Rafhlöðurnar í fjarstýringunni hafa sérstaklega langan líftíma.
Ef sendidr-ægni minnkar, verður að skipta um rafhlöðurnar.
Ábyrgðin nær ekki til rafhlaða.
Vinsamlegast farðu eftir eftirtöldum leiðbeiningum fyrir rafhlöður:
Ekki ætti að meðhöndla rafhlöður sem heimilissorp. Lög krefjast þess
að allir neytendur fargi rafhlöðum á réttan hátt á útnefndum förgunars-
töðum. Reyndu aldrei að endurhlaða rafhlöður sem ekki er ætlast til að
séu endurhlaðnar.
Sprengihætta!
Haltu rafhlöðum fjarri börnum, ekki valda skammhlaupi í þeim og taktu
þau ekki í sundur. Leitaðu læknis tafarlaust ef rafhlaða er gleypt.
Ef þess þarf skaltu þrífa tengin á rafhlöðum og búnaði fyrir hleðslu.
Fjarlægðu tómar rafhlöður úr búnaðinum tafarlaust!
Aukin hætta á leka!
Láttu rafhlöðurnar aldrei verða fyrir of miklum hita, eins og sólskini,
eldi eða álíka!
Það er aukin hætta á leka!
Forðastu snertingu við húð, augu og slímhimnur. Skolaðu þá hluta sem
hafa komist í snertingu við rafgeymasýru með miklu magni af köldu
vatni og leitaðu læknis tafarlaust. Skiptu alltaf um allar rafhlöður á sama
tíma. Notaðu einungis rafhlöður af sömu tegund; notaðu aldrei mismu-
nandi tegundir né blandaðu saman notuðum og nýjum rafhlöðum.
Fjarlægðu rafhlöðurnar ef búnaðurinn hefur ekki verið notaður í langan
tíma.
Skipt um rafhlöðu:
Til að skipta um rafhlöðu skal opna fjarstýringuna að aftanverðu með
skrúfjárni. Lyftið lokinu og takið út stýringuna sem liggur undir því.
Ýtið rafhlöðunni til hliðar og fjarlægið hana. Gætið þess að víxla ekki
plús- og mínusskautunum þegar nýjar rafhlöður eru settar í.
Setjið fjarstýringuna aftur saman.
TAKTU EFTIR!
Sprengihætta ef ranglega er skipt um rafhlöðu. Einungis má skipta um
rafhlöðu með sömu eða jafngildri tegund (CR2032).
34
Ljós hurðaopnara
LED-ljós hurðaopnarans hefur afar langan líftíma og er viðhaldsfrítt.
Ekki er hægt að fjarlægja hylkið utan um ljósið.
35
Förgun
Farga skal umbúðunum í næsta endurnýtingargám.
Þegar tækið er tekið úr notkun skal því fargað á viðeigandi hátt í
samræmi við evrópska tilskipun 2002/96/EB um rafmagnsúrgang til að
tryggja endurnýtingu efna í honum.
Ekki má farga gömlum spennum og rafhlöðum með almennu
heimilissorpi, þessi búnaður inniheldur mengandi efni og skal því
fargað á viðeigandi hátt í sorpförgunarstöðvum sveitarfélagsins
eða í gáma á vegum seljanda. Fara ber að reglum í hverju landi fyrir sig.
Farga ber öllum íhlutum í til þess ætlaðri opinberri sorpförgunarstöð.
Framfylgja skal öllum gildandi reglum í héraði og á landsvísu Ekki má
farga neinum hlutum lyftibúnaðarins, sem teknir hafa verið úr notkun,
með almennu heimilissorpi.
Allar upplýsingar um mögulegar leiðir til förgunar eru veittar af viðeigan-
di sveitarstjórn / bæjarstjórn.
36

Algengar spurningar

1. Hurðaopnari virkar ekki með fjarstýringu:
• Er opnarinn tengdur við rafmagn? Ef það kviknar ekki á lampa sem
tengdur er við rafmagnsinnstunguna, skaltu athuga öryggi eða aflrofa.
(Sumar innstungur er virkjaðar með veggrofa).
• Eru allar hurðarlæsingar afvirkjaðar? Sjá öryggisleiðbeiningar!
• Prófaðu að nota opnarann með nýrri rafhlöðu.
• Hafir þú tvö eða fleiri senditæki, þar sem aðeins eitt virkar, skaltu
athuga forritun móttakarans.
• Er snjór / klaki undir hurðinni? Ef já, gæti hurðin verið frosin við
jörðina. Fjarlægðu allar hindranir.
• Hurðarfjöðrin gæti verið biluð. Það verður að skipta um hana af
sérfræðingi.
2. Sendidrægni búnaðarins er of lítil:
• Er ný rafhlaða til staðar? Settu nýja rafhlöðu í.
• Prófaðu fjarstýringuna í bílnum annars staðar.
• Það dregur úr sendidrægninni þegar um er að ræða stálhurðar, ál-
eða málmplötur.
3. Hurð fer til baka af engri augljósri ástæðu:
• Er hurðin hindruð af einhverju? Togaðu í handvirkan sleppibúnað og
notaðu hurðina handvirkt. Sé um að ræða ójafnvægisstillt eða fast
hlið, vinsamlegast hafðu samband við þjónustudeildina.
• Endurforritaðu vinnsluafl og teygju opnarans.
• Hreinsaðu klaka eða snjó burt af lokunarsvæði hurðarinnar.
• Ef hurðin fer til baka þegar hún kemst í stöðuna ‚Lokuð', verður að
stilla endamarkaskiptingu fyrir þessa hurðarstöðu. Eftir að lokið hefur
verið við hverja stillingu, verður að kanna sjálfvirka sleppibúnaðinn
aftur:
• Endurstilling endamarka endrum og eins er ekki óvenjuleg.
Sérstaklega getur veðrun fært hurðargáttina til.
is 11

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Este manual también es adecuado para:

Myq lm70evffc

Tabla de contenido