NOTKUNARLEIÐBEININGAR
HÄLLDE RG-50
(IS)
AÐVÖRUN!
Gætið þess að koma ekki nærri beittum
hnífum og hreyfanlegum hlutum með
höndunum.
Lyftið alltaf vélinni upp á báðum
handföngum (A17) á hliðum
vélarhússins.
Stingið aldrei höndum í stóra
matarahólfið (A4) eða matarapípuna
(A2).
Notið alltaf stautinn (A1) þegar
matarapípan (A2) er notuð.
Stöðvið alltaf vélina með því að snúa
hraðastilli (A15) í stöðu "0" og draga
síðan út tengilinn eða slökkva á
aðalrofa áður en vélin er hreinsuð.
Haldið ævinlega í handfang matarans
(A3) þegar matariahólfið (A4) er opnað
eða því lokað.
Einungis löggiltir fagmenn mega gera
við vélina og opna vélarhúsið (A16).
Útpökkun.
Gangið úr skugga um að allir hlutar fylgi vélinni,
að vélin sé í lagi og að ekkert hafi skemmst í
flutningi. Athugasemdir verða að hafa borist
seljanda vélarinnar innan átta daga.
Uppsetning.
Tengið vélina við rafstraum með réttri
uppgefinni spennu í samræmi við upplýsingar á
kenniplötu aftan á vélarhúsinu (A16).
Komið vélinni fyrir á stöðugum bekk eða borði
sem er 650-900 mm hátt.
Öryggiseftirlit fyrir vinnslu.
Fjarlægið matarann (A5), e.t.v. skurðarverkfæri
(A6-A12) og frárásarskífu (A13) samkvæmt
fyrirmælum undir fyrirsögninni "Sundurtekt
matarans" og gangið síðan úr skugga um að
vélin fari ekki í gang þegar hraðastillinum (A15)
er snúið í stöðu "I".
Leggið matarann (A5) ofan á vélarhúsið (A16)
þannig að textinn "Close Open" lendi "klukkan
fimm" miðað við frárásarop vélarhússins (mynd
D1) og þrýstið mataranum réttsælis þangað til
hann stöðvast og matarinn situr fastur (mynd
D2). Gangið síðan úr skugga um að vélin
stöðvist þegar matarahandfanginu (A3) er lyft
upp og fari aftur í gang þegar
matarahandfangið er fellt niður, ef hraðastillir er
í stöðu "I".
Snúið hraðastilli í stöðu "I" og lyftið
matarahandfanginu upp og gangið úr skugga
um að öxullinn (A14) hætti þá að snúast innan
tveggja sekúndna.
Ef eitthvað reynist ekki í lagi ber að kalla til
viðgerðarmann áður en vélin er tekin í notkun.
Matarinn (A5).
Matarinn er notaður ásamt tilheyrandi
skurðarverkfærum (A6-A12) til að sneiða, skera
í teninga, strimla og rífa ávexti, grænmeti, þurrt
brauð, ost, hnetur og/eða sveppi.
Stóra matarahólfið (A4) er fyrst og fremst
notað til að meðhöndla kartöflur, lauk o.s.frv.,
einnig til að skera stærri matvöru eins og kál.
Stóra matarahólfið er einnig notað ef skera á
frá ákveðinni hlið, svo sem við sneiðingu
tómötum og sítrónum.
Matarapípan (A2) er einkum notuð við skurð á
löngu og mjóu hráefni, til dæmis gúrkum.
Val á skurðarverkfærum (A7-A12).
• Venjuleg skurðarskífa (10 mm). Sneiðir fasta
matvöru svo sem rótarávexti. • Báruskífa (4,5
mm) til að sneiða rauðrófur, gúrkur, gulrætur
o.fl.. • Fínskurðarskífa 1, 1,5, 2, 4, 6 og 15
mm) til að sneiða jafnt fasta sem mjúka matvöru
svo sem rótarávexti, lauk, blaðlauk, gúrku,
papriku, tómata, epli, sítrusávexti, banana og
sveppi. Strimlar kínakál og salöt. 1 mm skífan er
notuð á Parmesan-ost. • Strimlari (2x2,
2,5x2,5, 4,5x4,5 og 10x 10 mm) f yrir
súpustrimla, gúrku, salöt o.fl.. 2x2 mm fyrir
kartöflur og gulrætur í súpur.
• Teningagrind (10x10 og 15x15 mm). Sker
smáteninga, notuð ásamt venjulegri 10 mm
skurðarskífu. Sker rótarávexti, ávexti, kartöflur,
kál, rófur, gulrætur, gúrku, epli o.s.frv.. •
Teningahnífar fyrir mjúka matvöru (10x10x10
og 12,5x12,5x12,5 mm) innihalda tvo hnífa til
að teninga táomat og annan mjúkt og safamikið
grænmeti og ávexti. • Rifskífa (1,5, 2, 3, 4,5,
6, 8 og 10 mm) rífur gulrætur og kál í hrásalat.
Rífur möndlur og aðrar hnetur og þurrt brauð.
4,5 6 og 8 mm eru notaðar til að rífa ost á
pizzur, gratín og þess háttar. 8 og 10 mm eru
yfirleitt notaðar til að rífa kál/hvítkál. •
Fínrifskífa (Fine, Extra Fine). Fine útgáfan rífur
kartöflur í kartöflupönnukökur, harðan, þurran
ost svo sem Parmesan, þurrt brauð og Radísur.
Extra Fine rífur svartar radísur, þurrt brauð.
Sundurtekt matarans (A5).
Snúið mataranum rangsælis þangað til hann
stöðvast (mynd C) og lyftið mataranum síðan
upp.
Snúið skurðarverkfærinu (A6, 7, 8, 9, 1 1 eða
12) réttsælis og fjarlægið það.
Ef teningagrind (A10) er á vélinni er henni lyft
af.
Lyftið frárásarskífunni (A13) upp.
Uppsetning matarans (A5).
Leggið frárásarskífuna (A13) á öxulinn (A14) og
snúið og þrýstið frárásarskífunni niður í festingu
sína (mynd B1).
Við teningaskurð er teningagrindinni (A10)
þrýst niður með beittar skurðareggjarnar upp á
við þannig að raufin á hlið grindarinnar falli að
hælnum innan á vélarhúsinu (B2).
Síðan er venjulegu skurðarskífunni komið f yrir
þannig að hún falli ofan í festinguna (B3).
Þegar sneitt er, strimlað og rifið, rennið þá
aðeins viðeigandi skurðarverkfæri (A 6, 7, 8, 9,
1 1 eða 12) upp á öxulinn og snúið
skurðarverkfærinu þannig að það falli ofan í
festingu sína.
Leggið matarann (A5) ofan á vélarhúsið (A16)
þannig að textinn "Close Open" lendi "klukkan
fimm" miðað við frárásarop vélarinnar (mynd
D1) og snúið mataranum síðan réttsælis
þangað til hann stöðvast og matarinn situr fastur
(mynd D2).
Notkun hraðastillis (A15).
Þegar hraðastillir (A15) er í stöðu "0" er slökkt
á vélinni. Í stöðu "I" gengur vélin samfellt.
Hreinsun.
Hreinsið alltaf vélina vandlega þegar eftir
notkun.
Slökvkið fyrst á vélinni með því að færa
hraðastillinn (A15) á "0" og takið síðan vélina
úr sambandi eða rjúfið strauminn með rofanum.
Fjarlægið alla lausa hluta úr vélarhúsinu (A16)
þvoið þá og þurrkið vandlega.
Þvoið aldrei hluti úr léttmálmi í uppþvottavél,
nema þá sem merktir eru "diwash".
Ef skurðaráhöldin eru merkt "diwash", þá lesið
sérstöku "diwash"-leiðbeiningarnar og f ylgið
þeim í hvívetna.
Skolið vélarhúsið ofan frá (aldrei frá hlið) og/
eða þurrkið af vélarhúsinu með rökum klút.
Notið aldrei oddhvassa hluti, rispandi
uppþvottaefni, rispandi þvottasvampa né
háþrýstisprautu.
Skiljið aldrei skurðverkfæri (A6 – A12) eftir blaut
þegar þau eru ekki í notkun.
Vikulegt eftirlit.
Fjarlægið fyrst matarann (A5) og annaðhvort
skurðarverkfæri (A6-A12) og frárásarskífu
(A13).
Snúið hraðastilli (A15) í stöðu "I" og gangið úr
skugga um að vélin fari þá ekki í gang.
Festið matarann (A5), snúið hraðastilli í stöðu