Moldex 9000 Serie Instrucciones De Uso página 20

Ocultar thumbs Ver también para 9000 Serie:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 13
fram. o þið finnið bragð eða lykt af eiturefnum eða ertingar verður vart • Fylgið
notkunarleiðbeiningunum þegar gríman er notuð. • Varan hefur ekki að geyma neina
málmhluti sem leitt geta til íkveikju í sprengifimu andrúmslofti. • Vakni spurningar
varðandi notkun vörunnar, snúið ykkur þá til Moldex-Metric. • Auk þess skal við notkun
öndunarhlífa fylgt fyrirmælum og ákvæðum sem um þær gilda. • Skegg, langir bartar
eða önnur frávik á þéttisvæðum geta leitt til þess að búnaðurinn falli ekki fyllilega þétt
að andlitinu. Gleraugnaumgjarðir undir þéttilínunni koma í veg fyrir nægilega þéttingu.
• Grímunum má ekki breyta á nokkurn hátt. • Notendur grímanna og síanna skulu
kunna skil á réttri meðferð þeirra.• Grímu og síu skal geyma í mengunarlausu umhverfi
þegar þær eru ekki í notkun.
Athugið: Ekki má vinna með síubúnað í óloftræstum geymum og þröngu rými.
Undirbúningur undir notkun heilgrímunnar
Heilgrímuna skal yfirfara fyrir hverja notkun. Komi skemmdir eða gallar í ljós skal ekki
nota hana. Leitið tafarlaust til öryggisfulltrúa.
Aðgætið • brot, sprungur, afmyndanir og óhreinindi á grímunni og síunum. • hvort
höfuðbandið sé rifið, með skurði eða skaddað á annan hátt og hvort það sé nógu
teygjanlegt. • brot, sprungur, afmyndanir og óhreinindi á inn- og útöndunarventlum
sem og þéttihringjum síutengistykkja. Gangið úr skugga um að ventlum og þéttihringjum
sé rétt fyrir komið. • síðasta leyfilega notkunardag síanna sem og hvort þær sitji rétt
samkvæmt notkunarleiðbeiningunum fyrir gas- og agnasíur. Heilgríman sett upp / tekin
ofan (Myndir 1, 2, 3 og 4) Opnið böndin á stillingunum fjórum eins mikið og hægt er
og grípið höfuðbandið með annarri hendinni um skáband með áletruninni Moldex.
Hafið op höfuðbandsins við hnakkann og dragið grímuna ofanfrá og yfir andlitið.
Gætið þess nú að engin hár séu milli þéttikants og andlits. Hagræðið grímunni á
andlitinu og þrýstið grímunni með annarri hendinni þétt að munni og höku. Spennið nú
með hinni hendinni hnakkabandið fast öðrum megin og endurtakið þetta hinum megin.
Til þess að gríman sitji sem best skal alltaf spenna hnakkaböndin fyrst. Höfuðbandið
verður að liggja flatt á höfðinu. Strekkið nú jafnt á höfuð- og hnakkaböndum til að
gríman sitji þægilega. Framkvæmið þéttleikaprófið áður en farið er inn á vinnusvæðið.
Til að taka ofan grímuna, losið fyrst um enda hnakkabandsins með því að draga
grímuna frá andlitinu. Þéttleiki kannaður með undirþrýstingi (Mynd 5) Lokið fyrir opið
á loki síuhússins með lófanum, andið rólega að ykkur. Ef gríman dregst lítillega saman
er hún nógu þétt. Ef vart verður innstreymis lofts, leiðréttið þá staðsetningu grímunnar
eða breytið spennunni á böndunum. Endurtakið þessa prófun þar til gríman fellur þétt
að andlitinu. Þéttleiki prófaður með yfirþrýstingi (Mynd 6) Í heilgrímu með EN 148-
1 tengingu skal framkvæma þéttleikaprófið áður en síunni er komið fyrir í grímunni
sjálfri. Haldið fyrir útöndunarventilinn með lófanum, andið rólega frá ykkur. Ef ekkert
loft streymir út milli grímu og andlits er hún nógu þétt. Ef vart verður útstreymis lofts,
leiðréttið þá staðsetningu grímunnar eða breytið spennunni á böndunum. Endurtakið
þessa prófun þar til gríman fellur þétt að andlitinu.
Ef ekki tekst að láta grímuna falla nægilega þétt að andlitinu, farið þá alls ekki inn á
hættusvæðið. Hafið samband við öryggisfulltrúa.
Viðhald heilgrímunnar
Framleiðsludagsetning er skráð innan á kinn grímunnar.
Hreinsun/Sótthreinsun Við mælum með því að gríman sé hreinsuð eftir hverja notkun.
Sé hún ekki í notkun, ber að hreinsa hana á hálfs árs fresti. Mælt er með því að gríman
sé hreinsuð eftir hverja notkun. Fjarlægið síurnar, hreinsið grímuna sjálfa með heitu
vatni (hámark 50°C). Notið hlutlaust hreinsiefni sem og alkóhólsótthreinsiefni ef þarf.
Hægt er að draga ventilhimnuna úr festingunni til þess að þrífa hana. Til að hreinsa
innri grímuna skal losa hana úr báðum festipunktunum og koma henni síðan fyrir að
nýju með hjálp sporanna á neðri hluta gluggans og festipunktanna tveggja. Losa
skal um síurnar samkvæmt notkunarleiðbeiningum fyrir gas- og agnasíur. Athuga skal
einangrunargetu grímunnar með viðeigandi lekakönnunarbúnaði eftir hvert sinn sem
hún hefur verið hreinsuð eða sótthreinsuð.Fyrir hreinsun skal fjarægja hlífðarfilmuna af
skerminum. Þurrkið vel af grímunni áður en sett er ný hlífðarfilma og grímunni er komið
fyrir í geymslu. Geymsla Geymið 9000 grímuna í lokuðu, þurru, ómenguðu umhverfi.
Verjið hana gegn sólarljósi og hita ( sjá skýringarmynd „Geymsla"). Hægt er að skrá
nafn notandans sem og síuskiptin á umbúðirnar. Varúð: Þegar kalt er í veðri getur raki
leitt til þess að ventlarnir frjósi. Framleiðsludagurinn er letraður á innanverða grímuna
neðanvert. Dagatalsklukkur, sjá bls. 39. Útöndunarventill (Varahlutur nr. 9974 [b]) Ýtið
loki útöndunarventilsins niður og kannið óhreinindi, afmyndanir, brot eða sprungur
útöndunarventils og ventilfestingar.. Skiptið um ventilsíu eins og með þarf, a.m.k. á
fjögurra ára fresti. Skráið vinsamlegast dagsetningu þegar skipt er. Innöndunarventill
(Varahlutur nr. 9974 [a]) Kannið óhreinindi, afmyndanir, brot eða sprungur á
innöndunarventlinum á innri grímunni og á innanverðu tengistykki síunnar. Skiptið um
ventil ef þarf. Þegar skipta þarf um ventil á tengistykki síunnar, takið innri grímuna fyrst
úr. Þegar ventillinn er settur í skal þess gætt að hann sé algerlega undir festihökunum
þremur og liggi flatur í ventilsætinu. Innri gríma (Varahlutur nr. 9991) ein stærð fyrir
báðar stærðir M og L í grímum 9002, 9003, 9005 og 9006. Höfuðbönd (Varahlutur
nr. 9992) Til að skipta um höfuðbönd, dragið böndin eftir því sem við á gegnum
festingarnar þar til böndin losna frá grímunni. Þræðið nýju böndin gegnum festingarnar.
Gætið þess þá að Moldex merkið snúi út og ekki á hvolf. Síuþétting (Varahlutur nr.
9974 [c]) Dragið síuþéttihringinn af síutengistykkinu og kannið óhreinindi, afmyndanir,
brot eða sprungur á þeim. Skiptið um síuþéttihring ef þarf. Gríma með EN 148-1
tengingu (9004, 9005, 9006: Varahlutur nr. 9975 Hlífðarfilma rúðunnar (Varahlutur
nr. 9993) Fjarlægið gömlu hlífðarfilmuna af rúðunni. Fjarlægið hlífðarbréfið af báðum
límröndum varafilmunnar. Staðsetjið hlífðarfilmuna með hjálp strikanna við neðri rönd
rúðunnar og þrýstið henni uppað. Gleraugnafesting (Varahlutur nr. 9998) Komið
gleraugnafestingunni fyrir samkvæmt meðfylgjandi notkunarleiðbeiningum.
Hvers kyns ábyrgðir falla úr gildi ef varan er ekki geymd, notuð, henni ekki við haldið
eða ekki gert við hana samkvæmt þeim fyrirmælum sem er að finna í leiðbeiningum
þessum eða hún ekki notuð í samræmi við þær ákvarðanir sem um hana gilda.
Yfirlit yfir mismunandi grímu- og síutegundir og notkunarsvið þeirra
Heilgrímur samkvæmt EN 136:1998 CL2
18

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Productos relacionados para Moldex 9000 Serie

Este manual también es adecuado para:

900190029003900490059006

Tabla de contenido