3M Peltor Alert Manual Del Usuario página 34

Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 19
IS
3M™ PELTOR™ Alert
Heyrnarhlífar með FM-útvarpi, styrkstýringu og möguleika á tengingu ytri búnaðar.
Lestu leiðbeiningarnar vandlega fyrir notkun og geymdu þær til þess að geta leitað í þær síðar.
1. ÍHLUTIR höfuðspöng (Mynd A á forsíðu)
(A:1) Höfuðspöng
(A:2) Höfuðspangarfóðring (PVC þynna)
(A:3) Höfuðspangarvír (ryðfrítt stál)
(A:4) Tveggja punkta festing (Acetal)
(A:5) Eyrnapúði (PVC þynna og pólýeterfrauð)
(A:6) Hljóðdeyfipúði (pólýúreþanfrauð)
(A:7) Skál
(A:8) Hljóðnemi með styrkstýringu fyrir umhverfishljóð
(A:9) Styrkstillingar viðtækis
(A:10) Rásastillir
(A:11) Styrkstýrð aðgerð
(A:12) Loftnet
(A:13) Ytra hljóðtengi (3,5 mm víðómatengi)
(A:14) Rafhlöðulok
1. ÍHLUTIR hjálmfesting (Mynd B á forsíðu)
(B:1) Stuðningsarmur við skál (ryðfrítt stál)
2. AÐ SETJA UPP OG STILLA
Athugasemd! Ýta þarf hárinu kringum eyrun frá svo þéttihringirnir (A:5) falli þétt að.
Gleraugnaspangir þurfa að vera eins mjóar og hægt er og falla þétt að höfðinu til að lágmarka hljóðleka.
Höfuðspöng:
(C:1) Dragðu skálarnar út (A:7). Hallaðu efri hluta heyrnartólanna út á við til þess að tryggja að vírarnir séu fyrir utan
höfuðspangarvírana (A:3).
(C:2) Stilltu hæð skálanna með því að draga þær upp eða niður á meðan höfuðspönginni er haldið niðri.
(C:3) Höfuðspöngin ætti að liggja þvert yfir hvirfilinn.
Hjálmfesting:
(D:1) Komdu hjálmfestingunum fyrir í festiraufunum á hjálminum og smelltu þeim á sinn stað. Þegar stilla á heyrnartólin
úr loftræstistöðu í vinnustöðu er stálvírunum þrýst inn á við þar til smellur heyrist báðum megin. Gættu þess að skálar og
höfuðspangarvírar þrýsti ekki á hjálmbrúnina í vinnustöðu, það getur valdið hljóðleka.
(D:2) Vinnustaða.
(D:3) Loftræstistaða. Forðastu að leggja skálarnar að hjálminum því það hindrar loftræstingu (D:4).
3. NOTKUN/AÐGERÐIR
3.1 Að setja í rafhlöður
Notaðu skrúfjárn eða sambærilegt til þess að lyfta lokinu með því að snúa því rangsælis.
Settu í 1,5 V AA rafhlöðurnar. Gættu þess að rafhlöðurnar snúi rétt (+/–) áður en lokið er sett á (sjá teikningu á
rafhlöðuloki).
Viðvörun! Reyndu ekki að hlaða meðfylgjandi alkaline-rafhlöður, það gæti skaðað heyrnartólin. Rafhlöðurnar gætu líka
sprungið. Slökktu alltaf á tækinu áður en þú fjarlægir rafhlöður eða setur nýjar í.
Viðvörun! Afköst tækisins geta minnkað þegar rafhlöðuhleðsla minnkar.
3.2 Að kveikja og slökkva á heyrnartólunum
Snúðu styrkstilli viðtækisins (A:9).
3.3 Að stilla hljóðstyrk viðtækis
Snúðu styrkstilli viðtækisins (A:9).
3.4 Leitað að útvarpsstöðvum
Snúðu rásaleitarhnappi (A:10).
29

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Este manual también es adecuado para:

M2rx7a2-01M2rx7p3e2-01

Tabla de contenido