Descargar Imprimir esta página

Viðhald; Geymsla; Rafmagnstenging - Scheppach HBS20 Traducción Del Manual De Instrucciones Original

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 210
10.3 Sagað langsum (mynd 15)
Við það er verkstykki sagað eftir endilöngu.
• Komið langsumleiðaranum (5) vinstra megin á
sagarborðinu (ef það er hægt) (mynd 2/ B) og hann
stilltur miðað við æskilega breidd.
• Færið sagarblaðsleiðarann (4) niður á verkstykkið.
• Gangsetjið sögina.
• Ýtið brún verkstykkisins með hægri hendi upp að
langsumleiðaranum (5) og flata hliðin er látin liggja
á sagarborðinu (6).
• Ýtið verkstykkinu með jöfnu átaki upp að langsum-
leiðaranum (5) að sagarblaðinu (mynd 2/ B).
• Mikilvægt: Tryggja þarf löng verkstykki gegn því
að hrökkva af þega söguninni er lokið (t.d. með
rúllubúkka o.s.frv.)
10.4 Sagað á ská (mynd 13)
Stillið sagarborðið í æskilegt horn (sjá „Sagað á ská".
Sagið eins og lýst er í „Sagað langsum".
10.5 Sagað fríhendis(mynd 16)
Einn af mikilvægustu eiginleikum bandsagar er að
hægt er að saga beygjur og boga greiðlega.
• Færið sagarblaðsleiðarann (4) niður á verkstykkið.
• Gangsetjið sögina.
• Ýtið verkstykkinu með jöfnu átaki niður á sagar-
borðið (6) og færið það varlega að sagarblaðinu.
• Í mörgum tilfellum er það gagnlegt að saga beygjur
og horn gróft um 6 mm frá strikinu.
• Ef saga á beygjur sem eru of krappar fyrir
sagarblaðið þarf að saga hjáparsaganir framan við
beygjuna þannig að þessir viðarbútar detti af þegar
endanlegur radíus er sagaður.
Viðvörun!
Þegar sagað er þarf að stilla efri sagarblaðsleiðarann
(4) eins nálægt vinnustykkinu og hægt er.
• Opið stillihandfangið fyrir öryggisbúnað sagarblað-
sins (13). (mynd 1)
• Lækkið sagarblaðsleiðarann (4) og hlífðarbúnað
sagarblaðsins (3) eins nálægt verkstykkinu.
• Lokið síðan stillihandfanginu fyrir öryggisbúnað
sagarblaðsins (13) aftur.
11. Viðhald
Varúð! Fyrir allar stillingar,viðgerðir eða yfirferðir
takið klónna ávallt úr sambandi!
Almennt viðhald
Hreinsið reglulega spæni og saga af vélinni með klút.
Til að lengja endingartíma sagarinnar þarf að smyrja
hluti sem snúast einu sinni í mánuði. Ekki skal smyr-
ja mótorinn.
Notið engin ætandi efni við að hreinsa plastefni.
Þrif
Haldið öryggisbúnaði, loftrillum
og mótorhúsinu lausu við ryk og óhreinindi
eins og hægt er. Strjúkið af söginni með hreinum klút
eða blásið af með þrýstilofti með lágum þrýstingi.
Við mælum með því að tækið sé hreinsað eftir hver-
ja notkun.
Hreinsið tækið reglulega með rökum klút og
grænsápu. Notið ekki hreinsi- eða leysiefni því þau
gætu skemmt plasthluta tækisins. Gætið þess að vatn
geti ekki komist inn í tækið. Ef vatn kemst inn í raf-
búnað eykst hættan á raflosti.
156
IS
Viðhald
Engir hlutir eru inni í söginni sem þarfnast viðhalds.

12. Geymsla

Geymið tækið og fylgihluti þess á dimmum, þurrum
og frostlausum stað sem einnig er utan seilingar bar-
na.
Ráðlagður geymsluhiti er milli 5 og 30˚C. Geymið raf-
magnsverkfærið í upprunalegu umbúðunum.
Hyljið rafmagnsverkfærið til að verja það fyrir ryki eða
raka. Geymið rafmagnsverkfærið í upprunalegu um-
búðunum. Hyljið rafmagnsverkfærið til að verja það
fyrir ryki eða raka.

13. Rafmagnstenging

Rafmagnsmótorinn er fastur inn í tækinu og tilbúinn
til notkunar. Sambandið er samkvæmt gildandi VDE-
og DIN-öryggisreglum. Veitutíðnin, viðskiptarvinarins
megin, svo og framlengarsnúran sem notuð er, þarf
að vera samkvæmt þessum reglum.
Mikilvægar ráðleggingar
Ef mótorinn er ofkeyrður sjálfkrafa á honum. Eftir að
hann hefur kólnað (mismunandi tími) aftur á mótor-
num.
Skemmt rafmagnstengi
Á rafmagnstengjum verða oft einangrunarskemmdir.
Orsakir fyrir þessu geta verið:
Þrýstisvæði, þegar rafmagnstengi eru leidd í gegnum
glugga eða dyrastafi.
Beyglaðir staðir vegna rangrar festingar eða legu
snúrunnar.
Skurðir á snúrinni vegna ágangs.
Einangrunarskemmdir vegna þess að rifið hefur verið
úr innstungunni.
Rifur vegna þess að einagrunin er gömul.
Slíkar hættulegar rafmagnssnúrur má ekki nota vegna
þess að einangrunarskemmdir eru lífshættulegar.
Látið yfirfara rafmagnsnúrur reglulega fyrir skemmdum.
Hafið í huga að rafmagnssnúrur mega ekki vera tengdar
straumneti.
Rafmagnssnúrur þurfa að uppfylla VDE- og DIN-öryg-
giskröfur. Notið einungis snúrur merktar H05VV-F,
3x1.0 mm2.
Miði með tegundarlýsingu á rafmagnssnúrunni er
samkvæmt reglum.
Riðstraumsmótor
Netspennan þarf að þola 230 V~.
Framlengingarsnúrur þurfa að sýna allt að 25 m lengd
og þversnið þeirra þarf að vera1,5fermillimetri.
Aðeins rafmagnsfagaðili má gera við leiðslur og raf-
magnsbúnað.
Ef þið hafið fyrirspurnir vinsamlegast gefið upp eftir-
talin atriði:
• Straumtegund mótorsins
• Upplýsingar um tegund vélarinnar
• Upplýsingar um tegund mótorsins

Publicidad

loading