Íslenska - IKEA SYMFONISK Serie Manual De Instrucciones

Ocultar thumbs Ver también para SYMFONISK Serie:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 34
Íslenska
Vöruupplýsingar
• Hleður 1 þráðlausan og 1 USB-tengdan búnað
samtímis.
• USB-C tengið er samhæft PD 3.0 staðli
(hraðhleðsla).
• Hleður Qi-vottuð tæki þráðlaust.
• Vottað samkvæmt skilgreiningu Qi 1.2.4 BPP.
• Vaktar hitastig og orku í öryggisskyni.
• LED stöðuvísir fyrir þráðlausa hleðslu.
Notkunarleiðbeiningar
• Stingdu rafmagnssnúrunni í samband við
vegginnstungu.
• Settu tækið sem á að hlaða ofan á plús merkið
(+) á hleðslutækinu fyrir þráðlausa hleðslu. Tækið
þarf að setja beint ofan á plúsmerkið (+) til að
hleðslan gangi sem best fyrir sig.
• Ef engin hleðsla er á rafhlöðunni gæti tekið
nokkrar mínútur fyrir hleðslu að hefjast.
• Settu USB snúrurna í samband og tengdu svo
hinn enda snúrunnar í tækið sem þú vilt hlaða.
• Notaðu aðeins USB snúrur sem mælt er með
fyrir tækið þitt til að hlaða og skiptu út gölluðum
snúrum samstundis.
LED stöðuljós fyrir þráðlausa hleðslu:
Kveikt: LED ljósið lýsir í 3 sekúndur.
Hleður sig: Kveikt er á LED ljósi.
Hleðslu lokið: Slökkt á LED ljósi.
Villa: LED ljósið blikkar.
Gott að vita
• Búnaðurinn gæti hitnað þegar hann er í hleðslu.
Það er eðlilegt og hann kólnar aftur þegar hann
er fullhlaðinn.
• Hleðslutími er mismunandi, hann fer eftir
afkastagetu rafhlöðu, hleðslustigi, aldri
rafhlöðunnar og hitastigi umhverfisins sem
hleðslan fer fram í.
• Hitastig við hleðslu : 0°C til 40°C.
• Lengd USB snúrunnar og gæði hafa áhrif á
hleðsluhraða og getu.
• Taktu hleðslutækið úr sambandi fyrir þrif og
þegar það er ekki í notkun.
• Þurrkaðu af hleðslutækinu með rökum klút.
Hleðslutækið má aldrei liggja í vatni.
Varúðarráðstafanir og tæknilegar upplýsingar má
sjá á bakhlið hleðslutækisins.
Geymdu leiðbeiningarnar.
VIÐVÖRUN!
• Innstungan þarf að vera nálægt búnaðinum og
aðgengileg.
• Notaðu aðeins í þurru umhverfi.
• Eftirlit ætti að vera með börnum, til að tryggja að
þau leiki sér ekki með vöruna.
• Ekki nota búnaðinn þar sem er bleyta, raki eða
mikið ryk þar sem það gæti valdið skemmdum.
• Ef búnaðurinn skemmist þarf að farga honum.
• Aldrei nota skemmda eða gallaða USB-snúru til
að hlaða, það getur valdið skaða á vörunni og
tækjunum þínum.
• Aðeins hlaða tæki sem eru Qi-vottuð.
• Burðarþol hillu: 3 kg.
Viðgerð á vöru
Ekki reyna að gera við vöruna sjálf/ur. Ef þú opnar
eða fjarlægir hluta gætir þú komist í snertingu við
hættulega rafspennu eða aðra hættuvalda.
Reglugerð um fjarskiptatíðni
Samkvæmt reglugerð um fjarskiptatíðni ætti
notandinn ekki að vera í minna en 20 cm fjarlægð
frá tækinu við hefðbundna notkun.
Tæknilegar upplýsingar
Módel: SYMFONISK hleðsluhilla
Tegund: E2122
Inntak: 100-240V AC, 50/60Hz, hámark 2.5A
Úttak:
AC: 100-240 V AC, 50/60Hz, 1.0A
USB-C: 5,0V DC/3,0A 15,0W, 9,0V DC/2,0A 18,0W,
12,0V DC/1,5A 18,0W, 15,0V DC/1,2A 18,0W
Qi:
Vinnslutíðni: 110 - 148 kHz
Aflsafköst: 0 dBμA/m á 10m
Aðeins fyrir notkun innandyra
Framleiðandi: IKEA of Sweden AB
(skráningarnúmer verslunar: 556074-7551)
Heimilisfang:
Box 702, SE-343 81 Älmhult, SWEDEN
24

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido