2.2
Forvörn fyrir sprengingar
Notið ekki ShockMaster í rakadrægum herbergjum eða í hugsanlega sprengifimu umhverfi, þ.e. í nálægð
við eldfimt loft blandað deyfilyfjum, súrefni eða köfnunarefni.
2.3
Notkunaröryggi
Nálæg hreyfanleg og færanleg hátíðni samskiptatæki líkt og farsímar geta valdið truflunum.
Áður en þú byrjar að nota ShockMaster í fyrsta skipti, vinsamlegast gættu þess að hafa lesið og skilið
allar upplýsingar sem koma fram í notendaleiðbeiningum og auka leiðarvísum fyrir aftengjanlega íhluti.
Góð þekking á þeim upplýsingum sem koma fram í þessum leiðarvísum mun gera þér kleift að bregðast
hratt og örugglega við bilunum og mistökum.
Ávallt þarf að bregðast samstundis við stöðu- og villuboðum sem upp koma.
ShockMaster er eingöngu ætlaður til notkunar af sérfræðingum í heilbrigðisgeiranum og má eingöngu
vera notaður af hæfu og þjálfuðu heilbrigðisstarfsfólki.
Notandinn er ábyrgur fyrir að staðsetja handfang ShockMaster rétt og að ákvarða hvar svæði
meðhöndlunar sjúklings er staðsett.
Áður en ný meðferð hefst þarf notandinn að spyrja sjúklinginn um mögulegar frábendingar eða ofnæmi
fyrir einhverjum innihaldsefnum í tengivökvahlaupinu. Ennfremur, notandinn þarf að fræða sjúklinginn
um aðgerðina, aukaverkanir og mögulega hættu á frávikum sem gætu tengst meðferðinni.
Til að koma í veg fyrir öryggishættur, skal ekki nota tækið nema fyrir eftirfarandi notkun:
Líftæknimeðferð
Andlitsvöðva vakningspunktar (MTrP)
Röskun vöðvahalds
Örvun vöðva og bandvefs
Nálarstungu höggbylgjumeðferð
Dæmi um frábendingar eru listaðar að neðan. Engar staðhæfingar eru settar fram um tæmanleika eða
ótakmarkað gildi listans.
Röskun á blóðstorknun (dreyrasýki)
Notkun storkuvara, sérstaklega Marcumar
Blóðtappamyndun
Æxlisjúkdómar, sjúklingar með þekjuvefsmein
Meðganga
Truflun í taugakerfi vegna sykursýki
Bráðar bólgur / graftarmyndun á marksvæði
Opin kastbrjósk
Kortisónmeðferð í allt að 6 vikur áður en fyrsta meðferð hefst
Sjúklingur með hjartagangráð
Gervilíffæri
Beinþynning
Sýkt sár
Stórar taugar og æðahol sem innihalda loft (lungu, þarmar, ...)
Hætta á blæðingum
Hjartasvæði
Opið ör
Hryggjarliðir, hryggjarsúla eða höfuð
Aukaverkanir sem venjulega hverfa innan 5 til 10 daga.
Bólga, roðnun, margúll
Punktblæðingar, sársauki, erting í beinhimnu
Húðskemmdir eftir fyrri kortísón meðferðir
Hjartsláttatruflanir
ATHUGIÐ:
Hentugasta umhverfishitastig fyrir notkun tækisins er á milli +10°C og +40°C.
2.4
Tilskipun um lækningatæki
Tækið uppfyllir allar nauðsynlegar kröfur sem tilgreindar eru í tilskipun um lækningatæki sem sett er fram
af framkvæmdastjórn ESB (93/42/EEC).
25