Íslenska - IKEA STENSTORP Manual De Instrucciones

Ocultar thumbs Ver también para STENSTORP:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 14
ÍSLENSKA
Borðplatan er úr eik með 7-9% rakainnihaldi
sem er viðeigandi rakainnihald fyrir
borðplötur notaðar á svæðum með
eðlilegu hita- og rakastigi. Borðplatan er
úr náttúrulegum efnivið og breytist eftir
rakastigi í umhverfinu. Í versta tilfelli
gæti hún því skekkst örlítið. Hægt er að
koma í veg fyrir það að mestu ef þú fylgir
leiðbeiningunum fyrir uppsetningu og
umhirðu hér að neðan.
1. Opnið ekki plastumbúðirnar sem
eru utan um borðplötuna fyrr en að
samsetningu kemur. Geymið borðplötuna
við venjulegt hitastig (um 20°C) og
venjulegt rakastig. Stillið borðplötunni
ekki upp við heitan ofn og leggið hana
ekki á kalt gólf.
2. Borðplatan er meðhöndluð í
verksmiðjunni með viðarolíu. Pússið
borðplötuna með fínum sandpappír
eftir uppsetningu. Pússið í þá átt sem
viðurinn liggur. Berið þunnt lag af
BEHANDLA viðarolíu á viðinn. Bíðið í um
15-20 eftir að olían smjúgi alveg inni í
viðinn. Notið mjúkan klút til að þurrka
umframolíu af viðnum. Meðhöndlið
borðplötuna annan hvern dag fyrstu
vikuna eftir að notkun hefst og síðan
þriðja hvern dag þangað til yfirborðið
er mettað (eftir um tvo mánuði). Til að
varðveita endingargott yfirborð viðarins
um mörg ókomin ár mælum við með
því að hann sé meðhöndlaður með
BEHANDLA viðarolíunni 3-5 sinnum
á ári. Svæði þar sem viðurinn gæti
þornað, eins og í kring um vaskinn eða
helluborðið ætti að meðhöndla oftar.
3. Rispur og litla bletti má pússa af með
sandpappír K180 á pappírskubb. Pússið
alltaf í þá átt sem viðurinn liggur. Notið
milda sápu og vatn við dagleg þrif. Notið
aldrei stálull eða aukaefni til að þrífa
yfirborðið.
Eldhúsáhöld og fleira úr steypujárni geta
skilið eftir sig svarta bletti á borðplötunni.
Það er vegna þess að tannínsýra í eikinni
hvarfast við járnið. Setjið þess vegna aldrei
blauta steypujárnspotta beint á borðplötuna.
Notið pottastand. Yfirborðsskemmdir er
hægt að laga með því að pússa með fínum
sandpappír í þá átt sem viðurinn liggur.
Berið síðan olíu á yfirborðið.
MIKILVÆGT! Þvoið notaða pensla með vatni
og látið klúta liggja í bleyti, eða kveikið í
þeim undir eftirliti til að koma í vef fyrir
sjálfsprottinn bruna.
9

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido