Íslenska - IKEA TRÅDFRI Manual De Instrucciones

Ocultar thumbs Ver también para TRÅDFRI:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 24
Íslenska
NOTKUN Á ÞRÁÐLAUSUM MAGNARA
IKEA Home smart vörurnar ná betri tengingu með
TRÅDFRI magnaranum.
Pörun: Bættu IKEA Home smart vörum við
snjallkerfið. Sjá leiðbeiningar hér að neðan.
STÝRIBÚNAÐI BÆTT VIÐ MAGNARANN
Þegar magnari er seldur með IKEA Home smart
vöru (í sömu pakkningu) eru þau þegar pöruð
saman.
Þú getur ekki bætt IKEA Home smart vöru beint við
magnarann. Til þess þarftu TRÅDFRI stýribúnað.
Fylgdu eftirfarandi þrepum til að bæta við
stýribúnaði:
Gættu þess að magnarinn sé í sambandi og að
kveikt sé á honum.
1. Haltu stýribúnaðinum nálægt magnaranum sem
þú vilt bæta við (ekki meira en í 5 cm fjarlægð).
2. Ýttu og haltu niðri pörunarhnappinum í a.m.k.
10 sekúndur. Pörunarhnappurinn er undir lokinu
að aftan.
3. Stöðugt rautt ljós birtist á stýribúnaðinum.
Farðu að vörunni sem þú vilt stýra og endurtaktu
pörunina.
Hvítt ljós dofnar á IKEA Home smart vörunni og
blikkar einu sinni til að gefa til kynna að hún sé
pöruð við magnarann.
ENDURSTILLA Á GRUNNSTILLINGU
Þráðlaus magnari:
Þrýstu prjóni í gatið undir magnaranum í a.m.k. 5
sekúndur.
Þegar búið er að endurstilla magnarann skaltu
para stýribúnaðinn við magnarann og para svo
stýribúnaðinn aftur við IKEA Home smart vöruna.
MIKILVÆGT!
• Magnarinn er aðeins ætlaður til notkunar
innandyra og má nota við 0°C til 14°C.
• Ekki skilja magnarann eftir í beinu sólarljósi eða
nálægt hitagjafa þar sem hann gæti ofhitnað.
• Drægi á milli þráðlausa magnarans og
móttökutækis er mælt fyrir opið svæði.
Mismunandi byggingarefni og staðsetning
búnaðarins getur haft áhrif á drægi.
VARÚÐ!
• Innstungan þarf að vera nálægt búnaðinum og
aðgengileg.
• Notið aðeins á þurrum stað.
• Hafðu eftirlit með börnum til að tryggja að þau
leiki sér ekki með vöruna.
• Fargaðu búnaðinum ef hann verður fyrir
skemmdum.
• Aldrei nota skemmda eða gallaða USB-snúru til
að hlaða, það getur valdið skaða á búnaðinum og
tækinu þínu.
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
Tegund: E1746 þráðlaus magnari
Inntak: 5.0V DC
Langdrægi: 10 m á opnu svæði
Aðeins fyrir notkun innandyra
Rekstrartíðni: 2405-2480MHz
Aflsafköst: 3 dBm
14

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido