Fylgdu öllum merkingum um HÆTTU, VIÐVARANIR og VARÚÐ og leiðbeiningunum í
eigandahandbókinni með Weber-grillinu þínu við notkun þessa tækis. Ef þú hefur ekki
eigandahandbókina handbæra skaltu hafa samband við þjónustufulltrúa á þínu svæði með því að
nota samskiptaupplýsingarnar á www.weber.com.
Sé ekki farið eftir merkingum um HÆTTU, VIÐVARANIR og VARÚÐ sem finna má í þessari eigandahandbók
kann það að leiða til alvarlegra slysa á fólki eða dauðsfalla, eða eldsvoða eða sprengingu sem veldur
eignatjóni.
m Aðeins ætlaður til notkunar utanhúss.
m AÐEINS ætlaður til notkunar með Weber grillum af gerðunum Pulse 1000 og 2000. Ekki reyna að festa
aðrar vörur eða tækjabúnað við vagninn.
m Aldrei skal færa grillið til á vagninum þegar það er í notkun og/eða það er heitt.
m Röng samsetning getur skapað hættu. Fylgdu leiðbeiningunum um samsetningu í þessari handbók
vandlega.
m Sýndu skynsamlega aðgát við alla notkun á grillinu og vagninum.
m Settu vagninn upp á stöðugum, sléttum fleti utanhúss, áður en grillið er sett upp á hann. Aldrei má setja
vagninn upp á hallandi yfirborði.
m Fjarlægðu grillið af vagninum áður en hann er settur í skott á bíl, upp í skutbíl, stóran fjölskyldubíl, jeppling
(SUV), húsbíl (RV) eða nokkuð annað geymslurými.
m Ekki flytja vagninn ásamt grilli í uppréttri stöðu yfir ósléttan eða grófan flöt eða upp eða niður tröppur.
m Aldrei skal nota vagninn sem tröppu eða stiga.
m Ekki nota vagninn eða setja grill á hann ef einhverjir hlutar hans eru skemmdir eða þá vantar.
m Börn ættu aldrei að nota grillið. Aðgengilegir hlutar grillsins geta orðið mjög heitir. Haltu börnum, öldruðum
og gæludýrum fjarri grillinu þegar það er í notkun.
m Sýndu fyllstu aðgát við alla notkun á Pulse-grillinu þínu. Grillið hitnar við eldunar- og hreinsunaraðgerðir
og aldrei má færa það til eða skilja það eftir án eftirlits þegar það er í notkun.
m Aldrei má halla sér yfir opið grillið á meðan verið er að kveikja upp í því eða elda á því.
m Ekki ætti að hafa nein eldfim efni í um 60 cm (24 tommur) fjarlægð frá grillinu. Þetta á við um allar hliðar
grillsins, efsta hlutann, botninn, bakhliðina og hliðarnar.
m Ekki setja yfirbreiðslu eða nokkuð eldfimt á eða í geymslurýmið undir grillinu þegar það er í notkun eða
er heitt.
m Grillið má aðeins nota utandyra á vel loftræstu svæði. Ekki nota grillið inni í bílskúr, byggingu, tengibyg-
gingu eða nokkru öðru lokuðu rými.
m Ekki ætti að nota grillið undir þaki eða skyggni úr óeldvörðu, eldfimu efni.
m Notaðu grillið aðeins með þeim hætti sem lýst er í handbókinni. Röng notkun kann að valda eldsvoða,
raflosti eða slysum á fólki.
m Haltu eldfimum gufum og vökvum, svo sem bensíni, alkóhóli o.s.frv., og eldfimum efnum í öruggri fjarlægð
frá vinnusvæðinu.
m Ef kviknar í feiti skal leggja lokið niður, slökkva á grillinu og taka það úr sambandi við rafmagn. Hafa skal
grillið lokað þar til eldurinn hefur slokknað. Ekki má nota vökva til að slökkva eldsloga.
m Haltu rafmagnssnúrum í öruggri fjarlægð frá heitum flötum. Fylgdu leiðbeiningum um meðhöndlun snúra.
m Staðsettu rafmagnssnúruna fjarri svæðum sem mikið er gengið um. Staðsettu snúruna þannig að ekki sé
hætta á að togað verði í hana eða einhver hrasi um hana.
m VARÚÐ: Til að lágmarka hættu á eignatjóni og/eða slysum á fólki má ekki nota framlengingarsnúru nema
snúran samræmist tæknilýsingum sem finna má í þessari handbók.
ATHUGAÐU: Tengi við framlengingarsnúru verður að halda þurru.
ATHUGAÐU: Aðeins má nota leiðslu af stærðinni 14, með jarðtengdri kló sem hentar til notkunar fyrir tækjabúnað
utanhúss. Framlengingarsnúran má ekki vera lengri en 4 metrar (13 fet). Skoðaðu framlengingarsnúruna
vel fyrir notkun og skiptu um hana ef hún er skemmd.
m VARÚÐ: Þetta grill er einungis ætlað til heimilisnota utanhúss. Ekki má nota það innanhúss eða við
matreiðslu í atvinnuskyni. Ekki skal nota það sem hitara.
m VARÚÐ: Láttu tækið kólna áður en það er fært til, hreinsað eða sett í geymslu.
m VARÚÐ: Þegar grillið er ekki í notkun ætti að taka hitastillinn úr því og geyma hann innanhúss.
VIÐVARANIR:
VARÚÐARÁBENDINGAR:
IS
15
WWW.WEBER.COM