geberit ACO 102 Instrucciones De Servicio página 151

Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 69
Pressað með Geberit þrýstikjöftum
Skilyrði
• Röraendarnir eru gráðuhreinsaðir og hreinir
• Rör og þrýstitengi hafa verið sett saman samkvæmt uppsetningarleiðbeiningum fyrir
lagnakerfið
AÐVÖRUN
Hætta er á slysum vegna brota sem skjótast burt ef þrýstikjaftarnir eru ekki
notaðir rétt eða ef slitnir eða skaddaðir þrýstikjaftar eru notaðir
Þegar þrýstikjaftar eru notaðir verða þeir að vera í fullkomnu lagi (sjá „Mikilvæg
öryggisatriði")
Gætið þess að þvermál þrýstitengisins samræmist þvermáli þrýstikjaftsins
Setjið þrýstikjaftinn ekki skakkt á þrýstitengið
Gætið þess að engin óhreinindi, spæni eða álíka séu á milli þrýstikjaftsins og
þrýstitengisins
Ef þrýstikjafturinn hefur verið notaður á rangan hátt eða á annan hátt en
fyrirhugaður er skal ekki nota hann áfram heldur láta yfirfara hann á viðurkenndu
verkstæði
Notið viðeigandi hlífðarbúnað (hlífðargleraugu o.s.frv.)
Þrýstikjaftar eru slithlutir. Við mikla notkun myndast efnisþreyta sem kemur fram sem
smásprungur í efninu þegar um mikið slit er að ræða. Þrýstikjaftar sem slitna með
þessum hætti eða hafa orðið fyrir annars konar skemmdum geta brotnað af, einkum
þegar búnaðurinn er notaður í röngum tilgangi eða með röngum hætti (t.d. ef verið er
að pressa of stórt fitting, ef þrýstihluturinn klemmist, ef aðskotahlutur er á fitting
o.s.frv.).
AÐVÖRUN
Hætta á að klemmast á milli þegar þrýstiverkfærið lokast sjálfkrafa
Farið ekki með líkamshluta eða aðskotahluti á milli hluta þrýstikjaftsins
Haldið þrýstiverkfærinu ekki með þrýstikjaftinum
VARÚÐ
Tjón á tækinu vegna of langrar notkunar
Eftir 30 mínútna samfellda notkun skal láta þrýstiverkfærið kólna í a.m.k. 15 mínútur
Það fer eftir gerð þrýstikjaftsins með hvaða hætti pressunin fer fram og því er ítarlega
lýsingu að finna í notendahandbók viðkomandi búnaðar.
1
Gætið þess að þvermál þrýstitengisins samræmist þvermáli þrýstikjaftsins.
2
Hefjið pressunina með því að styðja á ræsihnappinn og haldið honum inni í að minnsta
kosti eina sekúndu.
Niðurstaða
Vökvaventillinn slekkur á pressuninni þegar henni er að fullu lokið. Þegar pressun er
lokið slokknar á mótornum.
B1024-003 © 06-2015
965.804.00.0 (02)
IS
151

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido