Íslenska - IKEA LAGAN Manual Del Usuario

Ocultar thumbs Ver también para LAGAN:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 14
http://ikea-club.com.ua
ÍSLENSKA
Þessi borðplata er úr gegnheilum við
sem hefur 8-10% rakainnihald. Þetta er
hæfilegt rakahlutfall fyrir borðplötur sem
eru notaðar við aðstæður þar sem hita- og
rakastig er eðlilegt. Viður er lifandi efni sem
þenst út og dregst saman í samræmi við
rakastig umhverfisins og þess vegna geta
viðarborðplötur í einstöku tilfellum bognað
lítillega. Þetta má vanalega forðast með því
að fylgja leiðbeiningum um uppsetningu og
meðhöndlun sem eru hér fyrir neðan.
Opnið ekki plastumbúðirnar fyrir kemur
að að uppsetningu. Geymið borðplötuna
við venjulegt hita- og rakastig. Stillið
borðplötunni ekki upp við heitan ofn og
leggið hana ekki á kalt gólf.
Borðplatan er meðhöndluð í verksmiðjunni
með einni umferð af viðarolíu. Pússið
borðplötuna í þá átt sem viðurinn liggur
eftir uppsetningu. Undirbúið viðinn með
því að pússa það með fínum sandpappír
eða Scotch-Brite™. Þurrkið allt ryk með
þurrum klút. Notið pensil eða klút til að
bera þunnt lag af BEHANDLA viðarolíu á
viðinn. Olían er um 15 mínútur að smjúga
inn í viðinn. Notið mjúkan klút til að þurrka
umframolíu af viðnum. Látið yfirborðið
þorna. Endurtakið meðhöndlunina þrisvar
sinnum með dags millibili til að olían nái
að þorna á milli. Þegar borðplatan er þurrt,
pússið það með grófum pappír eða pappa til
að yfirborðið varði mjúkt. Til að varðveita
endingargott yfirborð viðarins mælum við
með því að hann sé meðhöndlaður reglulega
með BEHANDLA viðarolíunni. Svæði þar sem
viðurinn gæti þornað, eins og í kring um
vaskinn eða helluborðið ætti að meðhöndla
oft.
Rispur og litla bletti má pússa af með
sandpappír. Pússið alltaf í þá átt sem
viðurinn liggur. Notið venjulegan
uppþvottalög, sápu eða vatn við dagleg
þrif. Notið aldrei aukaefni til að þrífa
borðplötuna.
Leggja þarf FIXA hlíf undir borðplötu sem
sett er fyrir ofan uppþvottavél, þvottavél
eða ofn til að vernda borðplötuna.
MIKILVÆGT!
Þvoið notaða pensla og gegnbleytið notaða
klúta með vatni og setjið þá í lokaða poka til
að útiloka hættuna á sjálfsprottnum bruna.
9

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido