Descargar Imprimir esta página

KitchenAid 5KMT2115 El Manual Del Propietario página 97

Ocultar thumbs Ver también para 5KMT2115:

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 43
NOTKUN VÖRUNNAR (ÁFRAM)
BRAUÐRISTUN
1.
Styttu rafmagnssnúruna ef þess þarf með því að vefja henni upp undir aðaleiningunni.
Fætur brauðristarinnar eru nógu háir til að rafmagnssnúran komist undan öllum hliðum
hennar.
Settu í samband við jarðtengda innstungu.
Ekki fjarlægja jarðtenginguna.
Ekki nota millistykki.
Ekki nota framlengingarsnúru.
Ef ekki er farið eftir þessum leiðbeiningum getur það leitt til dauða,
elds eða raflosts.
2.
Settu brauðristina í samband við jarðtengda innstungu.
3.
Snúðu ristunarhnappinum til að velja hversu dökkt brauðið á að ristast. Snúðu
ristunarhnappinum til hægri til að fá dekkra ristað brauð, eða til vinstri til að fá það ljósara.
ATHUGIÐ: Brauðtegundir og rakainnihald þeirra gætu þurft mismunandi ristunarstillingar.
Til dæmis brúnast þurrt brauð hraðar en rakt brauð og þarf því ljósari stillingu.
4.
Settu brauðið eða annan mat sem á að rista ofan í raufina (raufarnar).
ATHUGIÐ: Til að fá jafna ristun skal aðeins rista eina brauðtegund af sömu þykkt í hvert
sinn.
Ýttu á hnappinn fyrir beyglur ef þú ætlar að rista beyglur.
5.
Ýttu lyftistönginni niður til að byrja að rista. Ristaða brauðið rís sjálft upp þegar ristuninni er
lokið og brauðristin slekkur á sér.
RÁÐ: Fyrir smærri mat er hægt að lyfta lyftistönginni upp til að brauðið nái upp fyrir efstu
brún brauðristarinnar.
6.
Til að hætta við ristun hvenær sem er skaltu ýta á hnappinn Hætta við( ). Brauðristin mun
lyfta upp ristaða brauðinu og slökkva á sér.
UMHIRÐA OG HREINSUN
MIKILVÆGT: Láttu tækið kólna alveg áður en hlutir eru settir á eða teknir af og áður en tækið
er þrifið.
1.
Taktu brauðristina úr sambandi og láttu hana kólna áður en þú þrífur hana.
2.
Taktu um miðjuna á fjarlægjanlega mylsnubakkanum og renndu honum út. Hristu
mylsnuna ofan í ruslafötu. Ráðlagt er að tæma mylsnubakkann eftir hverja notkun.
Mylsnubakkann má aðeins þvo í höndunum.
MIKILVÆGT: Bakkinn er heitur strax eftir að búið er að rista.
3.
Strjúktu af brauðristinni með mjúkum og rökum bómullarklút. Ekki nota eldhúsþurrkur,
rispandi hreinsiefni eða hreinsilög.
Ekki setja brauðristina á kaf í vatn.
ATHUGIÐ: Ef fita eða olía skvettist á brauðristina skal strjúka sletturnar strax af með
mjúkum og rökum bómullarklút.
VIÐVÖRUN
Hætta á raflosti
97

Publicidad

loading