Descargar Imprimir esta página

Najell SleepCarrier volume 3 Manual Del Usuario página 15

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 21
ALMENNAR LEIÐBEININGAR
• Notið aðeins á hart, lárétt og þurrt undirlag
• Notið aðeins aukahluti frá eða samþykkta
af Najell AB
• Verið meðvituð um hættu við opinn eld og
aðra uppsprettu hita, einsog ofna eða gas
sem aldrei má vera í beinu sambandi við
SleepCarrier®.
• Skoðaðu handföngin og botninn reglulega
og kannaðu hvort þau hafi orðið fyrir skaða.
• Fylgið samsetningar og
notendaleiðbeiningunum í þessari handbók
til þess að tryggja að SleepCarrier® sé
notaður á réttan og öruggan hátt.
• Notið alltaf tréplötuna í botninn, nema við
þvott.
• Setjið aldrei fleiri en eitt barn í
SleepCarrier® á sama tíma.
• Þú berð ábyrgð á öryggi barnsins.
• Skiljið aldrei barn sem getur skriðið eða
snúið sér, eftir án eftirlits.
• Notið alltaf SleepCarier® á lárétt undirlag
með örugga fjarlægð frá hæðarmun eins og
enda rúmsins.
• Athugið að höfuð barnsins í burðarrúminu á
aldrei að vera lægra en líkami barnsins.
28
• SleepCarrier® er með dýnu í botninum,
notið ekki auka dýnu ofan á dýnuna sem
er til staðar.
• SleepCarrier® er ætlaður fyrir börn frá 0
mánaða aldri.
• Mesta þyngd barnsins sem
SleepCarrier® er ætlaður fyrir er 9 kíló.
• Fylgdust alltaf með barninu þegar þú
notar SleepCarrier®, svo að barnið sé
alltaf í öruggri stellingu.
• Fyrir fyrirbura og börn með
heilsufarsvandamál, ráðleggið ykkur við
sérfræðinga innan heilbrigðiskerfisins.
• Hættið að nota SleepCarrier® ef hluti
vantar eða eru skaddaðir.
• Þegar notað með axlarólinni skaltu festa
og stilla ólina rétt til að koma í veg fyrir að
barnið detti út.
• Notaðu aðeins SleepCarrier® til að bera
barnið á framanverðum líkamanum.
• Vertu viss um að barnið hafi alltaf
nægilegt svæði til þess að anda í
SleepCarrier®.
• Passaðu alltaf að allar spennur séu vel
fastar áður en þú notar SleepCarrier®.
• Festu bæði handföngin með
handfangsólinni á meðan þú lyftir.
VIÐVARANIR
Varan er aðeins ætluð barni sem getur
ekki setið uppi óstutt, snúið sér eða
ýtt sér upp á hendur og hné. Mesta
leyfilega þyngd barnsins er 9 kíló.
Notið ekki ef einhver hluti burðarrúmsins
er brotinn, rifinn eða týndur.
Ekki skilja sveigjanleg burðarhandföng
eftir inni í barnarúminu.
Skiljið ekki barnið eftir án eftirlits í
SleepCarrier®.
Notið vöruna ekki á statíf.
Notið aðeins á hart, lárétt og þurrt
undirlag.
Leyfið ekki öðrum börnum að leika án
eftirlits nálægt burðarrúminu.
Þegar það er notað sem burðarrúm
verður að herða ólina að hámarki
og festa handfangsólina, til að
forðast hættu á að barnið velti út úr
burðarrúminu.
Najell SleepCarrier uppfyllir öryggiskröfur Evrópustaðla
EN 1466:2014 og EN 16980:2017
Hreyfingar þínar og barnsins þíns
geta haft neikvæð áhrif á jafnvægi
þitt.
Vertu varkár þegar þú beygir þig
fram eða til hliðanna.
SleepCarrier® er ekki ætlaður til
notkunar í íþróttaæfingar.
SleepCarrier® á alltaf að vera
notaður aðeins af fullorðnum.
Notaðu aðeins SleepCarrier
®þegar þú gengur, situr eða stendur.
Notaðu ekki SleepCarrier® sem
bílstól.
Forðastu að klæða barnið þitt í of
hlý föt.
Leggstu aldrei niður með barnið þitt
í SleepCarrier® á meðan það er í
notkun með axlarólinni.
Mundu að beygja þig í hnjánum en
EKKI mittinu þegar ólin er i notkun.
29

Publicidad

loading