Descargar Imprimir esta página

Electrolux ENC8MD18S Manual De Instrucciones página 100

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

6. ÁBENDINGAR OG GÓÐ RÁÐ
6.1 Ábendingar um orkusparnað
• Frystir: Innri uppsetning heimilistækisins er
það sem tryggir skilvirkustu notkun orku.
• Kælir: Skilvirkasta notkun orku er tryggð í
þeirri uppsetningu að skúffum í neðri hluta
heimilistækisins og.hillum sé jafnt dreift.
Staðsetning kassa í hurð hefur ekki áhrif á
orkunotkun.
• Ekki opna hurðina oft eða hafa hana opna
lengur en nauðsyn krefur.
• Frystir: Því kaldari sem stillingin er, því
meiri orku notar hún.
• Kælir: Ekki still á of háan hita til að spara
orku nema eiginleikar matarins krefjist
þess.
• Ef umhverfishitastigið er hátt, hitastýringin
stillt á lágan hita og heimilistækið
fullhlaðið, getur verið að þjappan sé
stöðugt í gangi, en það getur valdið því að
hrím eða ís hlaðist utan á eiminn. Í þessu
tilfelli skaltu setja hitastýringuna í átt að
hærra hitastigi til að leyfa sjálfvirka þíðingu
og spara orku á þann hátt.
• Tryggðu gott loftflæði. Ekki hylja
loftræstiristarnar eða götin.
• Gakktu úr skugga um að matvaran inn í
heimilistækinu komi ekki í veg fyrir að loft
geti flætt út um þar til gerð göt aftan á
innanverðu heimilistækinu.
6.2 Ábendingar um frystingu
• Virkjaðu Extra Freeze aðgerðina að
minnsta kosti einum sólarhring áður en
maturinn er látinn í frystihólfið.
• Áður en ferskur matur er frystur skal setja
hann í álpappír, plastfilmu eða poka,
loftþétt ílát með loki.
• Til að fá skilvirkari frystingu og þíðingu ætti
að skipta matvælunum í minni skammta.
• Mælt er með því að láta merkingar og
dagsetningar á öll frosin matvæli. Það
mun hjálpa þér að þekkja matvælin og vita
hvenær þarf að nota þau áður en þau fara
að spillast.
• Maturinn á að vera ferskur þegar hann er
frystur til að varðveita gæðin. Sérstaklega
ætti að frysta ávexti og grænmeti eftir
uppskeru til að varðveita öll næringarefni
þeirra.
100
ÍSLENSKA
• Ekki frysta dósir eða flöskur með vökva,
sérstaklega kolsýrða drykki - þær geta
sprungið þegar þær eru frystar.
• Ekki láta heitan mat í frystihólfið. Kældu
niður að stofuhita áður en hann er látinn
inn í hólfið.
• Til að forðast hækkun hitastigs fyrir
matvæli sem þegar voru frosin skal ekki
setja fersk, ófrosin matvæli beint við hlið
þeirra. Láttu matvæli við stofuhita í þann
hluta frystihólfsins þar sem eru engin
frosin matvæli.
• Ekki borða ísmola, vatnsís eða íspinna
strax eftir að þeir hafa verið teknir úr frysti.
Hætta er á kali.
• Ekki endurfrysta þiðin matvæli. Ef
matvælin eru þiðin skaltu elda þau, kæla
og frysta.
6.3 Ábendingar um geymslu á
frosnum mat
• Frystihólfið er það sem er merkt með
.
• Góð hitastilling sem varðveitir frosna
matvöru er -18°C eða lægri.
Sé hærri hiti stilltur fyrir heimilistækið getur
það leitt til styttri endingartíma fyrir
vörurnar.
• Allt frystihólfið hentar fyrir geymslu á
frosnum vörum.
• Skildu eftir nægilegt pláss í kringum
matvælin til að loft nái að flæða vel um
þau.
• Fyrir fullnægjandi geymsluskilyrði, skal
skoða fyrningardagsetninguna á
matarumbúðum.
• Það er mikilvægt að pakka matvælunum
þannig að vatn, raki og vatnsgufa komist
ekki að þeim.
6.4 Innkaupaábendingar
Eftir að hafa keypt í matinn:
• Gakktu úr skugga um að umbúðirnar séu
ekki skaddaðar - maturinn gæti hafa
spillst. Ef umbúðirnar eru bólgnar eða
blautar, getur verið að þær hafi ekki verið
geymdar við réttar aðstæður og hafi þegar
byrjað að þiðna.

Publicidad

loading