Skýring á táknum
Tákn í handbók
Lesið og skiljið alla merkimiða tækja og
handbókina. Ef viðvörunum er ekki fylgt
getur það leitt til alvarlegra meiðsla.
Stjórnendur og aðrir á vinnusvæðinu
skulu nota höggþolin hlífðargleraugu með
hliðarhlífum.
Stjórnendur og aðrir á vinnusvæðinu skulu
nota heyrnarhlífar.
Ráðlagt er að stjórnandi og aðrir á
vinnusvæðinu noti CE-merkta hjálma á
vinnusvæðinu.
!
Lesið allar öryggisviðvaranir og allar
leiðbeiningar fyrir notkun.
Sýnið aðgát þegar nöglum og heftum er
skotið.
!
Almennar viðvaranir
Almennar öryggisviðvaranir
•
VIÐVÖRUN: Lesið allar öryggisviðvaranir og allar
leiðbeiningar. Ef viðvörunum og leiðbeiningum er
ekki fylgt getur það valdið raflosti, eldsvoða, alvarlegum
slysum og/eða dauða.
•
Notið verkfærið og fylgihluti þess í samræmi við þessar
leiðbeiningar og hafið hliðsjón af vinnuskilyrðum og því
verki sem vinna þarf hverju sinni. Notkun verkfærisins
í öðrum tilgangi en tilætluðum gæti leitt til hættulegra
aðstæðna.
•
Sýnið aðgát, vinnið verkið af vandvirkni og notið heilbrigða
skynsemi við alla notkun verkfærisins. Notið ekki verkfærið
ef þið finnið fyrir lasleika eða eruð undir áhrifum áfengis
eða lyfja. Andartaks vangát á meðan verkfærið er notað
getur leitt til alvarlegra slysa á fólki eða skemmda á
búnaði.
•
Notandi verður að leggja mat á þá hættu sem notkun
verkfærisins kann að valda öðrum.
• Notið CE-merkt hlífðargleraugu með vörn gegn
hlutum sem kastast til, bæði að framanverðu og á
hliðum, við alla notkun og viðhald á verkfærinu.
• Notið CE-merktar heyrnarhlífar á vinnusvæðinu og í
nágrenni þess til að forðast heyrnarskemmdir.
Váhrif af miklum hávaða, án hlífðarbúnaðar, getur valdið
varanlegu og alvarlegu heyrnartapi, sem og öðrum
skerðingum á borð við tinnitus (suð, sónn, flaut eða söngl
fyrir eyrunum). Til að draga úr slíkri hættu má hugsanlega
beita hljóðdeyfandi aðgerðum til að hindra að efniviður
sem unnið er með „glymji".
Tákn á verkfæri
Þetta tæki er CE-samþykkt í samræmi við
gildandi staðla.
Lesið og skiljið alla merkimiða tækja og
handbókina. Ef viðvörunum er ekki fylgt
getur það leitt til alvarlegra meiðsla.
Stjórnendur og aðrir á vinnusvæðinu
skulu nota höggþolin hlífðargleraugu með
hliðarhlífum.
Stjórnendur og aðrir á vinnusvæðinu skulu
nota heyrnarhlífar.
P.MAX
X BAR
Mesti vinnuþrýstingur
(XXX PSI)
Verkfæri fyrir mörg högg í röð. Verkfærið
hleypir af þegar það kemst í snertingu við
stykkið sem unnið er með. Sýnið aðgát.
• Mælt er með því að nota CE-merktar höfuðhlífar á
vinnusvæðinu.
• Það er á ábyrgð vinnuveitanda að krefjast þess að
notendur verkfæra, sem og allir aðrir starfsmenn sem
kunna að vera á svæðinu, noti persónuhlífar svo sem
hlífðargleraugu, rykgrímur, skriklausa öryggisskó, hjálma
og/eða heyrnarhlífar.
• Notið viðeigandi klæðnað. Gangið ekki í víðum fatnaði
eða með skartgripi. Haldið hári, fatnaði og hönskum fjarri
hreyfanlegum hlutum til að komast hjá alvarlegum slysum.
Notið aðeins hanska sem veita fullnægjandi grip og gera
kleift að nota verkfærið og stillingarbúnað með öruggum
hætti. Klæðist hlýjum fatnaði þegar unnið er í kulda, til að
halda höndunum heitum og þurrum.
• Teygið hendur eða líkama ekki of langt fram. Haldið góðri
fótfestu og jafnvægi allan tímann sem unnið er. Þannig
fæst betri stjórn á verkfærinu við óvæntar aðstæður.
• Komið í veg fyrir að hleypt sé af naglabyssunni fyrir
misgáning. Þegar verkfærið er undir þrýstingi er það
alltaf tilbúið til að hleypa af. Ef verkfærinu er þrýst upp að
mannslíkama eða öðru yfirborði fyrir slysni mun verkfærið
fara í gang og nagli skýst út úr skotsvæðinu í nokkra
millimetra í senn þar til þrýstingi á efniviðinn er létt.
• Umgangist verkfærið af virðingu og með vitund um
eiginleika þess.
• Notið verkfærið aldrei af kæruleysi eða í gríni.
• Fjarlægið öll verkfæri sem eru notuð við viðhaldsvinnu eða
viðgerðir áður en verkfærið er notað. Verkfæri sem verður
eftir áfast við hreyfanlegan hluta verkfærisins getur valdið
slysum á fólki.
Íslenska
81