Fyrirsjáanlegar Hættur; Notkunarleiðbeiningar; Tenging Við Loftþjöppu; Naglar Settir Í Eða Teknir Úr - Kyocera TJEP KA-1 Instrucciones De Funcionamiento Y Seguridad

Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 40
• Ávallt skal aftengja þrýstiloftið og taka verkfærið úr
sambandi við þrýstiloft þegar það er ekki í notkun.
• Beinið aldrei þrýstilofti að öðrum eða ykkur sjálfum.
• Notið ávallt lofttappa (D) fyrir verkfærið sem er af réttri
gerð til að tengja slönguna. Taka verður þrýstinginn af
verkfærinu þegar samskeyti tengisins eru aftengd.
• Ekki skal fara yfir tilgreindan hámarksþrýsting P
• Ekki má tengja verkfærið við loftþjöppu sem hugsanlega
dælir út 175 psi eða 12 börum.
• Börn ættu ekki að leika sér að verkfærinu. Börn ættu ekki
að þrífa eða sinna viðhaldi á verkfærinu.
• Lausar slöngur sem slást til geta valdið alvarlegu
líkamstjóni. Athugið ávallt hvort slöngur eða festingar séu
skemmdar eða lausar.
• Ákjósanlegum loftþrýstingi er náð með því að nota
loftslöngu sem er 3/8" í þvermál eða 10 mm. Þegar
loftslangan er of löng getur slíkt dregið úr loftþrýstingi og
loftaðveitu.
• Aldrei skal halda á verkfærinu né draga verkfærið með
slöngunni.
• Sýnið fyllstu aðgát við viðhald tækisins. Ef verkfærið
skemmist skal láta gera við það fyrir næstu notkun.
Ítarlegar upplýsingar um rétt viðhald á verkfærinu er að
finna í viðhaldsleiðbeiningum.
• Haldið verkfærinu ævinlega hreinu og þurrkið alla fitu og/
eða olíu af því þegar vinnu er lokið. Notið ekki hreinsiefni
sem innihalda leysiefni við hreinsun á verkfærinu.
Hugsanlegt er að leysiefni valdi tæringu í gúmmí- og/eða
plastíhlutum verkfærisins. Fita á handfangi og yfirbyggingu
verkfærisins getur valdið því að notandi missi verkfærið og
það getur valdið slysum á nærstöddu fólki.
• Aðeins þjálfað starfsfólk ætti að sinna viðhaldi á
verkfærinu og aðeins ætti að nota íhluti sem Kyocera
Unimerco Fastening framleiðir eða mælir með. Þannig er
tryggt að verkfærið sé ævinlega öruggt til notkunar.
• Aðeins skal knýja verkfærið með þrýstilofti við lægsta
mögulega þrýsting fyrir vinnuna sem innt er af hendi. Slíkt
er gert til að draga úr hávaða og titringi og til að halda sliti í
lágmarki.
• Notið aðeins smurefni sem Kyocera Unimerco
Fastening eða söluaðili TJEP mælir með.
• Notið eingöngu þrýstiloft. Mikil eld- og sprengihætta
myndast þegar súrefni eða eldfimar lofttegundir eru
notaðar til að knýja naglabyssuna.
Fyrirsjáanlegar hættur
• Mikilvægt er að afla upplýsinga um hvernig framkvæma
á hættumat varðandi þessa áhættuþætti og innleiða
viðeigandi eftirlitsaðgerðir.
• Við notkun er hugsanlegt að laust efni úr stykkinu sem
unnið er við og úr neglingarbúnaðinum spýtist frá.
• Ef verkfærið er notað lengi í senn kann notandinn að finna
fyrir óþægindum í handleggjum, herðum, hálsi eða öðrum
hlutum líkamans.
• Titringur getur valdið alvarlegum skaða á taugum og
blóðflæði í höndum og handleggjum.
• Ef notandi verkfærisins finnur fyrir einkennum, svo sem
viðvarandi eða endurteknum óþægindum, verkjum,
eymslum, stingjum, doða, sviða eða stirðleika ætti ekki
að hunsa slík hættumerki. Notandi ætti að ráðfæra sig
við hæfan heilbrigðisstarfsmann að því er varðar alla
vinnuþætti.
max
• Við notkun verkfærisins skal notandi beita viðeigandi
en vinnuvistfræðilega réttri líkamsstellingu. Haldið
traustri fótfestu og forðist óþægilega líkamsbeitingu eða
líkamsbeitingu sem veldur ójafnvægi.
• Haldið létt en örugglega um handfang verkfærisins þar
sem hætta á váhrifum vegna titrings eykst að öllu jöfnu ef
gripið er mjög þétt.
• Afleidd hætta sem tengist váhrifum af síendurteknum
vinnuaðstæðum, svo sem lengd notkunar, vinnustaða og
afl sem beita þarf, kann að vera til staðar. Ráðlagt er að
kynna sér EN 1005-3 og EN 1005-4 til að fá upplýsingar
um það.
• Skrik, hrösun og fall eru allt algengar orsakir slysa á
vinnustað. Gætið vel að hálum flötum við alla notkun
verkfærisins.
• Sýnið sérstaka aðgát þegar unnið er í nýju umhverfi.
Leyndir áhættuþættir kunna að vera til staðar, svo sem
raflagnir eða aðrar veitulagnir.
• Ef nota á verkfærið í umhverfi þar sem stöðurafmagnað ryk
er til staðar er hugsanlegt að notkunin dreifi rykinu og það
getur valdið hættu.
• Ef rykhætta kemur upp skal líta á það sem forgangsmál að
ná tökum á losun ryks og útblásturefna.
Notkunarleiðbeiningar
Tenging við loftþjöppuna
• Festið tengið á loftslöngunni við lofttappann á
naglabyssunni (D).
Naglar settir í eða teknir úr
• Tengið loftþjöppuna áður en nöglunum er hlaðið í byssuna.
Ef naglarnir eru settir í áður en loftþjappan er tengd er hætta
á að naglar skjótist út fyrir slysni. Beinið stútnum frá öllu
starfsfólki og gætið þess að hafa fingur ekki á gikknum á
meðan naglarnir eru settir í.
• Notið „tveggja þrepa" magasín til að hlaða verkfærið með
nöglum:
· Rennið naglaborðanum inn í rétta rauf (40 eða 50 mm)
á magasíninu (E) þar til borðinn er kominn fram hjá
naglastopparanum (B).
· Togið í þrýstibúnaðinn (C) þar til hann er kominn aftur
fyrir stopparann (B).
· Losið þrýstibúnaðinn gætilega (C) til að hann festist við
naglaborðann og smeygið honum inn í framhlutann.
• Naglar losaðir úr verkfæri með „tveggja þrepa" magasíni:
· Ýtið á losunarrofann á þrýstibúnaðinum (C) til að láta
naglaborðann renna yfir í aftari hluta magasínsins.
Íslenska
83

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Este manual también es adecuado para:

Tjep grf 34/10010030

Tabla de contenido