• Meðhöndlið verkfærið af fyllstu aðgát, þar sem það getur
orðið kalt og það getur skert grip og stjórnun á verkfærinu.
• Notið aldrei verkfærið nálægt eldfimu dufti, eldfimum
lofttegundum eða eldfimum gufum. Verkfærið myndar
neista sem getur kveikt í lofttegundum og valdið eldsvoða
og sprengingum í naglabyssunni.
•
Haldið vinnusvæðinu hreinu og vel lýstu. Óreiða og slæm
lýsing á vinnusvæði eykur hættu á slysum.
• Notið verkfærið ekki ef það er ekki í góðu ásigkomulagi og
starfhæft.
• Skoðið naglabyssuna fyrir notkun til að ganga úr skugga
um að hún sé í góðu ástandi og virki rétt. Leitið eftir
vanstillingu, hindrunum á hreyfingum hreyfanlegra hluta
eða öðrum einkennum sem gætu hindrað eðlilega virkni.
Notið verkfærið ekki ef eitthvað ofantalinna skilyrða eiga
við, þar sem þau geta valdið bilun í verkfærinu.
• Þegar verkfærið er skilið eftir í hvíldarstöðu skal hengja
það á belti/krók eða leggja það á hliðina. Leggið verkfærið
aldrei niður þannig að „nefið" (A) vísi að notandanum, eða
neinum öðrum sem kann að vera nærri.
• Aðeins fólk með nægilega tæknilega færni og þau sem
hafa lesið og skilið notkunar- og öryggisleiðbeiningar fyrir
verkfærið mega nota þetta verkfæri.
• Haldið börnum og óviðkomandi fólki fjarri á meðan
verkfærið er notað. Allar truflanir geta leitt til þess að
notandi missir stjórnina á verkfærinu.
• Gerið alltaf ráð fyrir að það gætu verið hefti eða naglar í
gasnaglabyssunni. Ef verkfærið er meðhöndlað af ógætni
getur það leitt til þess að naglar skjótast úr henni fyrir
slysni og valdi slysum á fólki.
• Notandi skal aldrei beina gasverkfærinu að sjálfum sér eða
neinum í grenndinni, hvort sem í því eru naglar eða ekki.
Ef kveikt er óvænt á verkfærinu hleypur hefti eða nagli úr
byssunni og veldur slysi.
• Þvingið aldrei verkfærið. Notið það verkfæri sem hentar
verkefninu best hverju sinni þar sem slíkt auðveldar verkið
og eykur öryggi í notkun með hliðsjón af þeirri spennu sem
verkfærið var hannað fyrir.
• Hleypið aldrei nagla úr verkfærinu nema það sé þétt upp
við stykkið sem unnið er með.
• Skjótið ekki úr verkfærinu í efnivið sem er of harður eða
of mjúkur. Harður efniviður getur endurkastað naglanum
og valdið meiðslum en mjúkt efni getur hleypt naglanum of
auðveldlega í gegn og valdið því að hann hlaupi í gegn.
• Skjótið ekki nöglum yfir aðra nagla.
• Sýnið sérstaka aðgát þegar nöglum er skotið í fyrirliggjandi
veggi eða aðra fleti með óþekktum innviðum, til að forðast
að naglar lendi í óséðum hlutum eða fólki hinum megin við
flötinn (t.d. rafleiðslum, lögnum, rafmagnssnúrum.)
• Þegar nagla hefur verið skotið er hugsanlegt að verkfærið
hrökkvi til baka („bakslag") og hreyfist til frá vinnufletinum.
Til að draga úr slysahættu skal ævinlega stjórna
bakslaginu með því að:
· hafa ævinlega fulla stjórn á verkfærinu og vera
reiðubúin að bregðast við eðlilegum og skyndilegum
hreyfingum þess, svo sem bakslagi.
82
· gera ráð fyrir bakslagi sem hugsanlega færir verkfærið
frá vinnufletinum.
· veita ekki viðnám gegn bakslaginu, sem getur valdið
því að verkfærið þrýstist aftur upp að vinnufletinum.
· halda andliti og líkamshlutum frá verkfærinu.
• Þegar unnið er nálægt jaðri stykkis eða við krappt
horn skal gæta þess vel að lágmarka flísamyndun,
sprungumyndun eða frákast eða endurvarp nagla, sem
getur valdið slysum.
• Notið verkfærið ekki til að festa niður rafleiðslur
eða rafmagnssnúrur. Verkfærið er ekki hannað fyrir
uppsetningu raflagna og getur skemmt einangrun á
rafleiðslum og rafmagnssnúrum, sem getur orsakað raflost
eða eldhættu. Verkfærið er enn fremur ekki einangrað
gegn áhrifum frá snertingu við rafmagn.
• Notið verkfærið aldrei til að framkvæma nein önnur verk
en það er sérstaklega hannað til að framkvæma. Einkum
skal forðast að nota það sem hamar. Ef verkfærið verður
fyrir höggi eykur það hættuna á að það skemmist og naglar
skjótist úr því fyrir slysni.
• Notið verkfærið ekki ef öryggismerkingar vantar eða ef
þær eru skemmdar og ólæsilegar.
• Ekki má fjarlægja, eiga við eða með öðrum hætti gera
stjórntæki verkfærisins ónothæf. Notið verkfærið ekki ef
einhver hluti stjórntækja þess er óstarfhæfur, ótengdur,
breyttur eða virkar ekki rétt.
• Ekki ætti að gera neinar breytingar á verkfærinu nema
slíkt hafi verið leyft sérstaklega í handbókinni eða fyrir
liggi skriflegt samþykki frá Kyocera Unimerco Fastening.
Ef þessum fyrirmælum er ekki fylgt getur það orsakað
hættulegar aðstæður eða slys.
• Haldið höndum og líkama fjarri skotdrægi (A) nagla
úr verkfærinu.
• Notið aðeins nagla af þeirri gerð sem tilgreind er í
tækniforskriftum í þessari handbók.
• Sýnið aðgát við meðhöndlun nagla, þar sem þeir geta verið
með hvassar brúnir og odda.
• Notið aðeins aukahluti sem framleiðandi verkfærisins
framleiðir eða mælir með, eða aukahluti sem virka með
sama hætti og þeir sem Kyocera Unimerco Fastening
mælir með.
• Setjið naglana í eftir að loftþjappan er tengd til að koma
í veg fyrir að nagli eða hefti hlaupi úr naglabyssunni fyrir
misgáning.
• Sýnið fyllstu aðgát þegar nagli sem er fastur í byssunni
er losaður. Vélbúnaður kann að vera undir þrýstingi og
hugsanlegt er að naglinn skjótist út þegar reynt er að losa
stíflu.
• Fjarlægið þrýstiloftið þegar
· verkfærið er ekki í notkun,
· framkvæma þarf einhvers konar viðhald eða viðgerðir,
· stífla er losuð;
· verkfærinu er lyft, það látið síga eða það fært á annan
stað,
· verkfærið er ekki í umsjá eða undir eftirliti notandans,
· verið er að fjarlægja nagla úr magasíninu.
• Þrýstiloft getur valdið alvarlegu líkamstjóni.